Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Lög nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða 17 Fiskistofa skal þegar í stað tilkynna ráðherra ef framsal eða önnur ráðstöfun aflaheimilda fer yfir fimmtung eða meira. Ákvörðun ráðherra um að framsal eða önnur ráðstöfun sé óheimil skal tilkynnt handhafa aflaheimildar innan tveggja mánaða frá því að tilkynning barst Fiskistofu.] 4) 1) L. 126/2011, 440. gr. 2) L. 47/2017, 2. gr. 3) L. 72/2016, 6. gr. 4) L. 74/2010, 2. gr. [VIII. □ 1 [Á fiskveiðiárunum 2010/2011 til [2017/2018] 1) hefur ráðherra til ráðstöfunar, til sérstakrar úthlutunar, 2.000 lestir af síld (íslenskri sumargotssíld), þar af allt að 800 lestir til smábáta, [2.000 lestir af makríl til smábáta] 2) og 2.000 lestir af norsk-íslenskri síld.] 3) □ 2 Aflaheimildum þessum er heimilt að ráðstafa til fiskiskipa sem hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni. Útgerð á þess kost að fá úthlutað fyrir hvert skip, gegn greiðslu gjalds, allt að … 3) [35 lestum] 4) af síld [eða makríl] 2) í senn. Ráðherra setur nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis. [Aflaheimildir sem úthlutað er samkvæmt þessu ákvæði er óheimilt að framselja.] 5) □ 3 [Verð á aflaheimildum í síld og makríl skv. 1. mgr. skal á hverjum tíma nema sömu fjárhæð og veiðigjald fyrir síld og makríl samkvæmt lögum um veiðigjald, nr. 74/2012. 6) ] 4) Gjaldið skal greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Með aflaheimildir þessar skal að öðru leyti fara eins og aflamark sem úthlutað er á grundvelli aflahlutdeildar. □ 4 Tekjur af aflaheimildum þessum skulu renna til ríkissjóðs og skal þeim ráðstafað á þann veg að þær renni í rannsóknasjóð til að auka verðmæti sjávarfangs, með það að markmiði að stuðla að rannsóknum, nýsköpun og þróun í sjávarbyggðum.] 7) 1) L. 47/2017, 3. gr. 2) L. 56/2015, 4. gr. 3) L. 48/2014, 11. gr. 4) L. 94/2016, 1. gr. 5) L. 81/2013, 3. gr. 6) Felld úr gildi skv. l. 73/2015, 11. gr. 7) L. 70/2011, 8. gr. [IX. … 1) ] 2) 1) L. 48/2014, 8. gr. 2) L. 70/2011, 8. gr. [X. … 1) ] 2) 1) L. 48/2014, 8. gr. 2) L. 70/2011, 8. gr. [XI. … 1) ] 2) 1) L. 48/2014, 8. gr. 2) L. 164/2011, 37. gr. [XII. □ 1 Þeir bátar sem hafa veiðileyfi með krókaaflamarki og eru stærri en nemur hámarksstærð skv. 2. mgr. 4. gr. laganna, við gildistöku þessara laga, skulu halda leyfi sínu til veiða með krókaaflamarki. Verði bátar þessir stækkaðir eftir gildistöku laga þessara skal veiðileyfi þeirra með krókaaflamarki falla úr gildi frá og með næstu fiskveiðiáramótum.] 1) 1) L. 82/2013, 6. gr. [XIII. ….] 1) 1) L. 72/2016, 5. gr. [XIV. ….] 1) 1) L. 72/2016, 5. gr. [XV. ….] 1) 1) L. 72/2016, 5. gr.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==