Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 18 [XVI . □ 1 Ráðherra er heimilt að draga allt að 5,3% frá viðmiðun leyfilegs heildarafla í makríl vegna makrílveiða íslenskra skipa [árin 2017 og 2018] 1) og ráðstafa til aðgerða sem tilgreindar eru í 5. mgr. 8. gr. laganna á [fiskveiðiárunum 2016/2017 og 2017/2018]. 1) Ráðherra er heimilt að skipta þessu aflamagni makríls í aðrar tegundir til að leitast við að tryggja tegundasamsetningu aflamagns í samræmi við 6. mgr. 8. gr.] 2) 1) L. 47/2017, 4. gr. 2) L. 72/2016, 8. gr. [XVII. □ 1 Ráðherra er heimilt að mæla fyrir um að starfræksla stöðva til móttöku á þangi frá Breiðafirði sé háð leyfi skv. 15. gr. c enda liggi fyrir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um töku þangs í firðinum. □ 2 Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum skal njóta forgangs umfram aðra umsækjendur við fyrstu útgáfu leyfa skv. 15. gr. c sem nemur allt að 20.000 tonnum alls. Óheimilt er að framlengja eða framselja heimildir veittar samkvæmt ákvæði þessu.] 1) 1) L. 49/2017, 7. gr. b. [XVIII. □ 1 Í samræmi við 3.–6. mgr. 3. gr. skal gera rannsóknar- og vöktunaráætlun fyrir lífríki Breiðafjarðar í tengslum við nýtingu sjávargróðurs til a.m.k. þriggja ára. Vakta skal áhrif nýtingar sjávargróðurs til frambúðar ef af henni verður. Í rannsóknar- og vöktunaráætlun skal leitast við að svara sem flestu um áhrif nýtingar sjávargróðurs á lífríki Breiðafjarðar en vistgerðir þangs og þara eru búsvæði fjölda tegunda sem eru mikilvægar jafnt fyrir vistkerfi fjarðarins í heild sem einstaka nytjastofna. Framkvæmd rannsóknar- og vöktunaráætlunar er ætlað að tryggja vistfræðilega nálgun við ákvarðanatöku og mat á vernd og sjálfbærri nýtingu sjávargróðurs í Breiðafirði. □ 2 Að þremur árum liðnum skal ráðherra hefja undirbúning að frumvarpi um sjálfbæra nýtingu sjávargróðurs í Breiðafirði sem taki mið af niðurstöðum rannsókna. Frumvarpið verði lagt fram á Alþingi eigi síðar en fimm árum eftir gildistöku þessa ákvæðis. Kostnaður við rannsóknir og vöktun samkvæmt ákvæði þessu greiðist úr ríkissjóði. □ 3 Úthluti ráðherra leyfum til nýtingar sjávargróðurs í Breiðafirði áður en rannsóknar- og vöktunaráætlun liggur fyrir og tillögur um sjálfbæra nýtingu hafa verið samþykktar skal það aðeins gert til fimm ára í senn og að viðhöfðum ýtrustu varúðarsjónarmiðum.] 1) 1) L. 49/2017, 7. gr. c. [XIX. □ 1 Hefja skal endurskoðun ákvæða um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni í lögum þessum, lögum um umgengni um nytjastofna sjávar og lögum um veiðigjald eigi síðar en 1. október 2020. Ákvæðin falla úr gildi 1. janúar 2023.] 1) 1) L. 49/2017, 7. gr. [XX. … 1) ] 2) 1) L. 19/2018, 2. gr. 2) L. 19/2018, 1. gr. [XXI. … 1) ] 2) 1) L. 19/2018, 2. gr. 2) L. 19/2018, 1. gr.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==