Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 20 III. KAFLI. Vigtun sjávarafla. 5. gr. □ 1 [Öllum afla, sem íslensk skip veiða úr stofnum sem að hluta eða öllu leyti halda sig í efnahagslögsögu Íslands, skal landað innan lands og hann veginn í innlendri höfn. □ 2 Ráðherra getur með reglugerð heimilað að ísfiski sé landað í erlendum höfnum eða hann fluttur úr landi án þess að hafa verið endanlega veginn, enda sé fiskurinn seldur á opinberum fiskmarkaði sem hlotið hefur leyfi Fiskistofu. Sé fyrirhugað að flytja út óunninn afla til sölu á fiskmarkaði erlendis sem ekki hefur verið endanlega vigtaður og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal útgerð og skipstjóri fiskiskips tryggja að Fiskistofu séu sendar upplýsingar um aflann eigi síðar en 24 klukkustundum áður en aflinn fer um borð í flutningsfar eða skip fer af miðum, sigli fiskiskip með eigin afla. Útgerð skal einnig upplýsa hvaða lágmarksverðs er krafist fyrir afla. Upplýsingar þessar skulu birtar á opnum uppboðsvef uppboðsmarkaðar fyrir sjávarafla þar sem aflinn skal boðinn upp. Ráðherra skal kveða á um uppboðsskilmála og framkvæmd uppboðs í reglugerð. 1) □ 3 Þá getur ráðherra heimilað með reglugerð að afla sem veiddur er úr íslenskum deilistofnum sé landað erlendis, enda sé eftirlit með löndun afla og vigtun hans talið fullnægjandi. □ 4 Þegar sérstaklega stendur á, t.d. vegna alvarlegrar vélarbilunar, getur Fiskistofa heimilað að skip sem vinna afla um borð landi erlendis. □ 5 Fiskistofa skal innheimta af fiskmarkaði erlendis kostnað sem til fellur við upphaflega úttekt á fiskmarkaði í kjölfar umsóknar, vegna launa eftirlitsmanna erlendis og við sérstakar eftirlitsúttektir af hálfu Fiskistofu. Enn fremur er Fiskistofu heimilt að innheimta af útgerð skips sem landar afla sínum erlendis, sbr. 3. og 4. mgr., kostnað vegna ferðar eftirlitsmanns til að fylgjast með löndun úr skipinu erlendis.] 2) [Um fjárhæð gjalda vegna kostnaðar samkvæmt þessari grein vísast til gjaldskrár Fiskistofu, 3) sbr. 5. gr. laga nr. 36/1992, um Fiskistofu, með síðari breytingum.] 2) ] 4) 1) Rg. 646/2007, sbr. 774/2007. 2) L. 144/2008, 1. gr. 3) Gjaldskrá Fiskistofu nr. 1185/2017. 4) L. 67/2015, 7. gr. 6. gr. □ 1 Allur afli skal veginn á hafnarvog í löndunarhöfn þegar við löndun aflans. Skal við vigtunina nota löggilta vog. Vigtun skal framkvæmd af starfsmanni hafnar sem hlotið hefur til þess löggildingu. Sé hafnarvog ekki í verstöð eða ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi getur Fiskistofa tímabundið leyft vigtun með öðrum hætti. □ 2 Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur Fiskistofa veitt einstökum aðilum leyfi til vigtunar án þess að afli sé veginn á hafnarvog að fenginni umsögn hafnaryfirvalda á löndunarstað. Slíkt leyfi skal því aðeins veitt að veruleg vandkvæði séu á því að vega aflann á hafnarvog, eftirlit hafnar sé nægilegt og innra eftirlit þess aðila sem í hlut á sé traust, auk þess sem vigtunarbúnaður sé löggiltur og vigtun framkvæmd af löggiltum vigtarmanni. [Þá er Fiskistofu heimilt, að fenginni umsögn hafnaryfirvalda á löndunarstað, að veita einstökum aðilum leyfi til að vigta afla, enda hafi hann áður verið veginn á hafnarvog.] 1) [Umsækjandi um leyfi til vigtunar samkvæmt þessari málsgrein skal greiða gjald fyrir útgáfu leyfis og úttekt á vigtunaraðstöðu samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu, sbr. 5. gr. laga nr. 36/1992, um Fiskistofu, með síðari breytingum.] 2) □ 3 Hafnir skulu uppfylla kröfur um aðstöðu til vigtunar sjávarafla og eftirlit sem kveðið er á um í reglugerð. 3) [Ráðuneytið] 4) getur bannað löndun sjávarafla í einstökum höfnum sem ekki fullnægja kröfum samkvæmt þessari málsgrein.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==