Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Lög nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar 21 □ 4 Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. getur [ráðuneytið] 4) við sérstakar aðstæður, svo sem vegna róðra frá afskekktum stöðum, veitt undanþágu frá löndun í viðurkenndri höfn. Skilyrði fyrir þessari undanþágu er að vigtun afla og skýrsluskil séu fullnægjandi. 1) L. 163/2006, 1. gr. 2) L. 67/2015, 8. gr. 3) Rg. 745/2016, sbr. 1011/2017, 91/2018, 617/2018 og 436/2019. 4) L. 126/2011, 222. gr. 7. gr. □ 1 Löggiltir vigtarmenn, er vigta sjávarafla, skulu gæta þess að fara í hvívetna eftir reglum um framkvæmd vigtunar, skráningu upplýsinga og skil á þeim. 8. gr. □ 1 Eftirlitsmönnum Fiskistofu og starfsmönnum hafnaryfirvalda er heimill aðgangur að fiskiskipum, flutningstækjum, fiskverkunum og birgðageymslum sem nauðsynlegur er til að vigta sjávarafla eða hafa eftirlit með vigtun hans. Hafnaryfirvöld skulu senda Fiskistofu jafnharðan upplýsingar um landaðan afla í því formi sem ráðherra ákveður með reglugerð. □ 2 Ráðuneytið skal að höfðu samráði við [það ráðuneyti er fer með samgöngumál] 1) og Hafnasamband sveitarfélaga kveða nánar á um það í reglugerð hvernig afli skuli veginn og upplýsingum um landað aflamagn safnað. 1) L. 126/2011, 222. gr. 9. gr. □ 1 Skipstjóra fiskiskips er skylt að halda afla um borð í skipi sínu aðgreindum eftir tegundum. Verði því ekki komið við vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Skipstjóra fiskiskips er skylt að láta vigta hverja tegund sérstaklega. [Ákveði ráðherra á grundvelli laga um stjórn fiskveiða að fiskur undir tiltekinni stærð eða þyngd teljist aðeins að hluta með í aflamarki skal hann setja reglur um hvernig að frágangi hans um borð í veiðiskipi og vigtun skuli staðið.] 1) Skipstjóra ber að tryggja að réttar og fullnægjandi upplýsingar um aflann berist til vigtarmanns. □ 2 [Við veiðar á uppsjávarfiski er ekki skylt að skilja meðafla frá uppsjávarafla. Meðafli reiknast þó til aflamarks viðkomandi fiskiskips, en ráðherra setur reglur 2) um hvernig móttakandi afla eða vigtarleyfishafi skuli standa að sýnatöku og útreikningi meðafla við löndun á uppsjávarfiski. Komi til gjaldtöku á grundvelli laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, með síðari breytingum, vegna fisktegunda sem veiðast sem meðafli við veiðar á uppsjávarfiski skal gjaldið þó aldrei vera lægra en nemur 70% af meðalfiskverði sömu tegundar í næsta mánuði fyrir gjaldtöku.] 3) □ 3 [Við öflun sjávargróðurs er ekki skylt að skilja meðafla frá, en ráðherra er heimilt að setja fyrirmæli í reglugerð um hvernig skuli staðið að eftirliti með skráningu hans og skoðun afla.] 4) □ 4 Skipstjórar fiskiskipa skulu halda sérstaka afladagbók sem Fiskistofa leggur til. Þá er skipstjórum skipa sem vinna afla um borð skylt að halda um vinnslu aflans sérstaka vinnsludagbók sem Fiskistofa leggur til. 1) L. 65/2004, 2. gr. 2) Rg. 659/2014. 3) L. 61/2005, 1. gr. 4) L. 49/2017, 1. gr. 10. gr. □ 1 Ökumaður, sem flytur óveginn afla, skal aka rakleiðis frá skipshlið að hafnarvog, að undanteknum þeim tilvikum þegar Fiskistofa hefur veitt undanþágu frá vigtun á hafnarvog, sbr. 2. mgr. 6. gr. Ökumaðurinn skal kynna sér samsetningu farmsins eins og kostur er og gefa vigtarmanni upplýsingar um hann. □ 2 [Skipstjóri skips sem flytur sjávargróður frá skipum sem afla hans til löndunarhafnar skal halda aflanum sérgreindum þannig að færa megi aflann á rétt skip í aflaskráningarkerfi Fiskistofu.] 1) 1) L. 49/2017, 2. gr.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==