Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 22 11. gr. □ 1 Starfsmenn hafnarvoga skulu sannreyna að uppgefin tegund vigtaðs afla sé rétt, m.a. með beinni skoðun úrtaks úr lönduðum afla eftir því sem við getur átt. Sama á við varðandi afla sem gefinn er upp sem undirmálsafli. Skulu þeir með reglubundnum hætti gefa Fiskistofu yfirlit yfir framkvæmdar úrtaksskoðanir og niðurstöður þeirra. 12. gr. □ 1 [Aðili sem stundar viðskipti með afla] 1) skal ganga úr skugga um að afli sem hann tekur við hafi verið veginn samkvæmt gildandi reglum um vigtun sjávarafla. □ 2 [Aðilar sem stunda viðskipti með afla og forsvarsmenn útgerða vegna viðskipta með afla eða afurðir vinnsluskipa skulu fylla út og skila skýrslum um ráðstöfun afla í því formi og með þeim hætti er ráðuneytið ákveður.] 1) □ 3 [Hver sá sem vanrækir að veita Fiskistofu upplýsingar skv. 2. mgr. skal sæta dagsektum. Dagsektir geta numið allt að 25.000 kr. á dag eftir eðli og umfangi brots. Ákvörðun um dagsektir skal tilkynna skriflega þeim sem hún beinist að. Dagsektir eru aðfararhæfar og greiðast í ríkissjóð. □ 4 Ákvörðun um dagsektir má kæra til [ráðuneytisins] 2) innan fjórtán daga frá því að hún er tilkynnt þeim sem hún beinist að. Dagsektir reiknast ekki fyrr en kærufrestur er liðinn. Ef ákvörðun er kærð til ráðuneytisins falla dagsektir ekki á fyrr en niðurstaða ráðuneytisins liggur fyrir.] 1) 1) L. 9/2011, 1. gr. 2) L. 126/2011, 222. gr. IV. KAFLI. Framkvæmd og viðurlög. 13. gr. □ 1 Fiskistofa og eftirlitsmenn í hennar þjónustu annast eftirlit með framkvæmd laga þessara. Getur Fiskistofa enn fremur leitað aðstoðar lögreglu og Landhelgisgæslunnar í því skyni. □ 2 [Telji Fiskistofa að afli tiltekins skips sé að stærðarsamsetningu, aflasamsetningu eða gæðum frábrugðinn afla annarra skipa sem stunda sambærilegar veiðar [eða að ekki sé farið að lögum og reglum um veiðarfæri] 1) skal Fiskistofa setja veiðieftirlitsmann um borð í skipið til að fylgjast sérstaklega með veiðum þess. Hafi veiðieftirlitsmaður í þessu skyni verið um borð í veiðiskipi [einn dag eða eina veiðiferð] 1) á sama fiskveiðiári skal Fiskistofa ákveða hvort ástæða sé til að fylgjast sérstaklega með veiðum skipsins áfram. Skal útgerð skipsins tilkynnt ákvörðun Fiskistofu. [Um fjárhæð kostnaðar útgerðar vegna eftirlits samkvæmt þessari grein vísast til gjaldskrár Fiskistofu, sbr . 5. gr. laga nr. 36/1992, um Fiskistofu, með síðari breytingum.] 1) Hafi veiðieftirlitsmaður á sama fiskveiðiári verið fleiri en [einn dag eða eina veiðiferð] 1) um borð í veiðiskipi samkvæmt þessari grein skal útgerð skipsins greiða allan kostnað, þar með talinn launakostnað, af veru hans um borð frá og með [öðrum degi eða annarri] 1) [veiðiferð]. 2) ] 3) □ 3 [Komi í ljós við eftirlit Fiskistofu hjá vigtunarleyfishafa verulegt frávik á íshlutfalli í afla skips í tiltekinni fisktegund miðað við meðaltal íshlutfalls skipsins í fyrri löndunum skal Fiskistofa fylgjast með allri vigtun hlutaðeigandi vigtunarleyfishafa í allt að sex vikur. Skal vigtunarleyfishafa tilkynnt um ákvörðun Fiskistofu. Vigtunarleyfishafi greiðir allan kostnað vegna eftirlits samkvæmt þessari málsgrein. Um fjárhæð og kostnað eftirlitsmannsins fer eftir gjaldskrá Fiskistofu, sbr. 5. gr. laga um Fiskistofu, nr . 36/1992. ] 4) □ 4 Heimildir Fiskistofu og eftirlitsmanna samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða gilda um eftirlit samkvæmt lögum þessum. 1) L. 67/2015, 9. gr. 2 ) L. 162/2000, 1. gr. 3 ) L. 161/2000, 1. gr. 4 ) L. 48/2017, 17. gr.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==