Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Lög nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar 23 14. gr. □ 1 [[Útgerð og skipstjóra fiskiskips er skylt að fylgjast með stöðu aflaheimilda skipa sinna með hliðsjón af úthlutuðum aflaheimildum, flutningi aflaheimilda og lönduðum afla. Fiskistofa skal fylgjast með nýtingu fiskiskipa á aflaheimildum. Bendi upplýsingar Fiskistofu til að skip hafi veitt umfram aflaheimildir sínar í einhverri tegund skal Fiskistofa tilkynna það útgerð og skipstjóra viðkomandi skips með símskeyti og jafnframt að skipið sé svipt leyfi til veiða í atvinnuskyni frá og með fjórða virka degi hafi fullnægjandi aflaheimildir ekki verið fluttar til skipsins innan þess tíma. Telji móttakandi tilkynningar að upplýsingar Fiskistofu um afla skips séu rangar og að skipið hafi ekki veitt umfram aflaheimildir skal hann innan þriggja virkra daga koma athugasemdum á framfæri við Fiskistofu. Fiskistofa getur veitt lengri frest til athugasemda ef ástæða er til að ætla að skráning afla eða aflaheimilda sé röng. Óheimilt er að stunda veiðar í atvinnuskyni eftir að símskeyti hefur borist móttakanda nema að fenginni staðfestingu Fiskistofu. Séu aflaheimildir skips að liðnum fresti auknar þannig að afli skipsins á fiskveiðiárinu rúmist innan þeirra skal því veitt leyfi að nýju. [Útgerð viðkomandi skips skal bera kostnað af símskeytum og öðrum tilkynningum samkvæmt ákvæðum þessarar greinar samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu, sbr. 5. gr. laga nr. 36/1992, um Fiskistofu, með síðari breytingum.] 1) Heimilt er Fiskistofu að fallast á að tilkynningar samkvæmt þessari grein fari fram með öðrum sannanlegum hætti en símskeyti, enda hafi útgerðir lagt fram tillögur um slíka framkvæmd sem Fiskistofa metur fullnægjandi. Ráðherra getur sett nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.] 2) □ 2 Komi til leyfissviptingar í annað sinn á sama fiskveiðiári vegna veiða umfram aflaheimildir skal Fiskistofa svipta skip leyfi til veiða í atvinnuskyni í tvær vikur til viðbótar þeim tíma sem leiðir af leyfissviptingu skv. 1. mgr., í sex vikur gerist það í þriðja sinn og í tólf vikur gerist það oftar. Úthlutun aflaheimilda í upphafi nýs fiskveiðiárs hefur ekki áhrif á lengd leyfissviptingar samkvæmt þessari málsgrein. Um framkvæmdina fer að öðru leyti skv. 1. mgr.] 3) 1) L. 67/2015, 10. gr. 2 ) L. 61/2005, 2. gr. 3) L. 24/2001, 1. gr. 15. gr. □ 1 [Fiskistofa skal svipta skip leyfi til veiða í atvinnuskyni ef útgerð eða áhöfn skips eða aðrir þeir sem í þágu útgerðar starfa hafa brotið gegn ákvæðum laga þessara eða reglum settum samkvæmt þeim. □ 2 Við fyrsta brot, sem varðar sviptingu veiðileyfis, skal leyfissvipting ekki standa skemur en eina viku og ekki lengur en tólf vikur eftir eðli og umfangi brots. Við ítrekuð brot skal svipting ekki standa skemur en fjórar vikur og ekki lengur en eitt ár. □ 3 Við fyrsta minni háttar brot skal Fiskistofa, þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr., veita hlutaðeigandi útgerð skriflega áminningu.] 1) 1) L. 163/2006, 2. gr. 16. gr. □ 1 Hafi skip ítrekað verið svipt leyfi til veiða í atvinnuskyni skv. 14. og 15. gr. laga þessara getur Fiskistofa ákveðið að veiðieftirlitsmaður skuli vera um borð á kostnað útgerðar í tiltekinn tíma, allt að tveimur mánuðum. Skal útgerð skips þá greiða allan kostnað sem hlýst af veru eftirlitsmanns um borð, þar með talinn launakostnað. [Um fjárhæð kostnaðar útgerðar vegna eftirlits samkvæmt þessari grein fer samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu, sbr. 5. gr. laga nr. 36/1992, um Fiskistofu, með síðari breytingum.] 1) 1) L. 67/2015, 11. gr.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==