Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 30 Á svæði milli línu sem dregin er réttvísandi suður frá Stokksnesi (vms. 20) og að 15°45'00 V er þó ekki heimilt að stunda veiðar innan 6 sjómílna frá landi tímabilið 1. maí – 30. september. C.6. Allt árið utan línu sem dregin er 4 sjómílur utan viðmiðunarlínu frá 18°00'00 V að línu réttvísandi suður frá Lundadrangi (vms. 28). Flokkur 3: C.7. Allt árið utan línu sem dregin er í 3 sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum (vms. 19) að 18°00'00 V. C.8. Allt árið utan línu sem dregin er í 3 sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins frá 18°00'00 V að línu réttvísandi suður af Lundadrangi (vms. 28). D. Suðurland. Allir flokkar: D.1. Allt árið utan línu sem dregin er úr punkti í 12 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Lundadrangi (vms. 28) í punkt 63°08'00 N – 19°57'00 V og þaðan í 4 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Surtsey (63°17'60 N – 20°36'30 V). D.2. Allt árið utan línu sem dregin er úr punkti í 4 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Surtsey í punkt í 5 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Geirfugladrangi [(63°40'7 N–23°17'1 V)]. 1) D.3. Tímabilið 1. ágúst – 31. desember utan línu sem dregin er úr punkti í 4 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Lundadrangi (vms. 28) í punkt í 4 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Surtsey. Flokkar 2 og 3: D.4. Allt árið utan línu sem dregin er úr punkti í 4 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Lundadrangi (vms. 28) í punkt í 4 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Surtsey. D.5. Tímabilið 16. maí – 31. desember utan línu sem dregin er 4 sjómílur utan viðmiðunarlínu frá línu réttvísandi suður úr Lundadrangi (vms. 28) að línu [réttvísandi suðvestur frá Reykjanesaukavita (vms. 34)]. 1) Flokkur 3: D.6. Allt árið utan línu sem dregin er í 3 sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins frá línu réttvísandi suður frá Lundadrangi (vms. 28) að línu réttvísandi suðvestur frá Reykjanesaukavita. … 1) E. Reykjanes- og Faxaflóasvæði. Allir flokkar: E.1. [Allt árið úr punkti í 5 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Geirfugladrangi og utan línu í 5 sjómílna fjarlægð frá Geirfugladrangi í punkt 64°43'70 N–24°12'00 V.] 1) E.2. Tímabilið 1. nóvember – 31. desember utan línu sem dregin er í 12 sjómílna fjarlægð frá viðmiðunarlínu á svæði sem að sunnan markast af línu dreginni réttvísandi suður frá Reykjanesaukavita (vms. 34) og að vestan af línu sem dregin er réttvísandi vestur frá Reykjanesaukavita. Flokkar 2 og 3: E.3. Allt árið utan línu sem dregin er 4 sjómílur utan viðmiðunarlínu frá línu réttvísandi suðvestur frá Reykjanesaukavita (vms. 34) að línu réttvísandi vestur frá Malarrifi (vms. 38).
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==