Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands 31 F. Breiðafjörður. Allir flokkar: F.1. Allt árið utan línu sem dregin er frá punkti 64°43'70 N – 24°12'00 V í punkt 64°43'70 N – 24°26'00 V og þaðan í punkt í 12 sjómílna fjarlægð réttvísandi vestur frá Bjargtöngum (vms. 43). Flokkar 2 og 3: F.2. Tímabilið 1. júní – 31. desember utan línu sem dregin er 4 sjómílur utan viðmiðunarlínu frá línu réttvísandi vestur frá Malarrifi (vms. 38) að línu réttvísandi vestur frá Skálasnaga (vms. 40) og þaðan í punkt í 4 sjómílna fjarlægð réttvísandi vestur frá Bjargtöngum (vms. 43). Flokkur 3: F.3. Tímabilið 1. janúar – 31. maí utan línu sem dregin er 4 sjómílur utan viðmiðunarlínu frá línu [réttvísandi vestur frá Malarrifi] 1) (vms. 38) að línu réttvísandi vestur frá Skálasnaga (vms. 40) og þaðan í punkt í 4 sjómílna fjarlægð réttvísandi vestur frá Bjargtöngum (vms. 43). F.4. Tímabilið 1. september – 31. desember utan línu sem dregin er 4 sjómílur utan við viðmiðunarlínu á Snæfellsnesi, norðan við línu réttvísandi vestur frá Malarrifi (vms. 38) og utan við viðmiðunarlínu milli Öndverðarnesvita (vms. 41) og Skorarvita (vms. 42). Að norðan markast svæði þetta af 65°16'00 N. Vestfirðir. Allir flokkar: [G.1.] 1) Allt árið frá línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum (vms. 43) að línu réttvísandi norður frá Horni (vms. 48), utan línu sem dregin er 12 sjómílur utan viðmiðunarlínu. 1) L. 127/1997, 1. gr. 2) Felld úr gildi skv. l. 79/1997, 21. gr. 3) L. 48/2014, 15. gr. 4) L. 59/2013, 11. gr. 5) Rg. 1061/2013. 6. gr. □ 1 Þrátt fyrir 5. gr. er heimilt að leyfa veiðar með dragnót nær landi en um ræðir í 5. gr. samkvæmt sérstökum leyfum Fiskistofu. Aðeins er heimilt að veita leyfi skipum styttri en 42 metrar, enda séu þau með aflvísi lægri en 2.500, en ráðherra skal með reglugerð 1) kveða nánar á um skilyrði fyrir veitingu leyfa samkvæmt þessari málsgrein. Getur ráðherra sett almennar og svæðisbundnar reglur í því skyni að stuðla að hagkvæmri nýtingu fiskistofna, að teknu tilliti til veiða með öðrum veiðarfærum sem stundaðar eru á viðkomandi svæðum. Getur ráðherra m.a. ákveðið að leyfin séu bundin við ákveðið svæði og að aðeins hljóti leyfi til veiða á tilteknu svæði tiltekinn fjöldi skipa, skip sem skráð eru á því svæði, skip af ákveðinni stærð eða gerð eða skip sem áður hafa stundað dragnótaveiðar. Þá getur ráðherra, að fenginni umsögn [Hafrannsóknastofnunar] 2) , ákveðið að dragnótaveiðar á ákveðnu svæði miðist við nýtingu ákveðinnar fisktegundar. □ 2 Sé talin þörf á að takmarka notkun tiltekins veiðarfæris til að tryggja skynsamlega nýtingu þess stofns sem veiðarnar beinast að eða vegna þeirrar skaðsemi sem notkun þess kann að hafa í för með sér fyrir nýtingu annarra stofna getur ráðherra með reglugerð 3) ákveðið að veiðar með því veiðarfæri séu háðar sérstöku leyfi Fiskistofu. Um skilyrði fyrir veitingu slíkra leyfa skal kveðið á í reglugerð og gilda ákvæði 1. mgr. um þau eftir því sem við á. 1) Rg. 1061/2013 ( um dragnótaveiðar). 2) L. 157/2012, 9. gr. 3) Rg. 320/2019 ( um togveiðar á kolmunna árið 2019). Rg. 462/2017 (um veiðar á gulllaxi). Rg. 461/2017 ( um veiðisvæði hörpudisks). Rg. 770/2006 ( um veiðar á íslenskri sumargotssíld), sbr . 996/2007, 1071/2008, 908/2009, 1033/2011, 707/2012, 813/2012, 672/2013, 1041/2014, 1225/2014, 959/2015, 1103/2015, 879/2016, 634/2017, 923/2017 og 951/2018 . Rg. 258/2012 ( um rækjuveiðar innfjarða), sbr . 375/2012, 854/2012, 865/2012, 964/2012, 355/2013, 379/2013, 540/2013, 936/2013, 519/2014, 660/2014, 464/2015, 503/2015, 1148/2015, 593/2016, 1198/2016, 384/2017, 415/2018, 431/2018 og 475/2019. Rg. 470/2012 ( um veiðar á lúðu), sbr. 522/2013 o g 1028/2013. Rg. 1066/2013 ( um dragnótaveiðar í Faxaflóa), sbr . 192/2014, 911/2014, 616/2015 o g 641/2015. Rg. 671/2018 (um veiðar á kröbbum).
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==