Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 34 12. gr. □ 1 Sé veiðieftirlitsmaður Fiskistofu um borð í veiðiskipi getur hann óskað eftir því að skipstjóri láti kasta eða leggi veiðarfæri á tilteknu svæði í tilraunaskyni, enda hafi hann rökstudda ástæðu til að ætla að önnur skip stundi skaðlegar veiðar á því svæði. Slíka tilraun skal gera með þeim hætti að hún tefji veiðar skipsins óverulega og valdi útgerðinni ekki teljandi óhagræði. Skal framkvæmd tilraunarinnar ákveðin í samráði við skipstjóra skipsins. 13. gr. □ 1 Ráðherra getur, að fengnu áliti [Hafrannsóknastofnunar], 1) veitt tímabundnar heimildir til veiðitilrauna og annarra vísindalegra rannsókna í fiskveiðilandhelgi Íslands og þurfa þær heimildir ekki að vera bundnar við íslenska aðila. Slíkar tilraunir eða rannsóknir skulu að jafnaði fara fram undir eftirliti [Hafrannsóknastofnunar], 1) Landhelgisgæslunnar eða Fiskistofu. Verði því ekki viðkomið að hafa sérstakan eftirlitsmann um borð í skipi því er heimild fær samkvæmt þessari grein skal heimildin veitt með því skilyrði að [Hafrannsóknastofnun] 1) fái nákvæmar upplýsingar um niðurstöður þessara tilrauna eða rannsókna. Heimilt er að ákveða að leyfishafi skuli greiða allan kostnað sem leiðir af veru eftirlitsmanns um borð í skipi samkvæmt þessari grein. 1) L. 157/2012, 9. gr. 14. gr. □ 1 Ráðherra setur reglur 1) um framkvæmd laga þessara. Getur hann m.a. sett allar reglur um útbúnað, gerð og frágang veiðarfæra og takmarkað notkun þeirra. Þá getur ráðherra sett reglur um lágmarksstærðir sjávardýra sem heimilt er að veiða og leyfilegan veiðitíma. 1) Rg. 262/1977 (um lágmarksstærðir fisktegunda), sbr. 311/1977. Rg. 1061/2013 (um dragnótaveiðar). Rg. 24/1998 (um möskvamæla og framkvæmd möskvamælinga), sbr. 992/2014. Rg. 739/2000 (um gerð og útbúnað smárækjuskilju). Rg. 543/2002 (um möskvastærðir og útbúnað varpna til veiða á botnfiski, rækju og humri), sbr. 39/2003, 84/2003, 412/2008, 494/2008 og 432/2018. Rg. 202/2004 (um friðun blálöngu á hrygningartíma), sbr. 252/2010. Rg. 396/2005 (um úthafsrækjuveiðisvæði og notkun seiðaskilju við rækjuveiðar), sbr. 667/2005, 239/2009, 282/2009 og 617/2015. Rg. 115/2006 (um þorskfisknet), sbr. 809/2012 og 225/2016. Rg. 724/2006 (um gerð og útbúnað smáfiskaskilju og notkun á 155 mm poka í botnvörpu). Rg. 671/2018 (um veiðar á kröbbum). Rg. 214/2010 (um humarveiðar), sbr. 1094/2011, 786/2013, 1067/2013, 10/2014, 1010/2014, 1063/2015, 717/2016, 4/2017 og 258/2019. Rg. 923/2010 (um veiðar á skötusel í net). Rg. 653/2018 (um brottfall reglugerðar nr. 34/2012, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Rauða torgi). Rg. 470/2012 (um veiðar á lúðu), sbr. 522/2013 og 1028/2013. Rg. 236/2019 (um hrognkelsaveiðar árið 2019), sbr. 338/2019. Rg. 795/2013 (um veiðar á sæbjúgum), sbr. 1013/2013, 477/2014, 999/2015, 946/2017, 424/2018 og 736/2018. Rg. 1010/2013 (um ígulkeraveiðar). Rg. 711/2018 (um veiðar á kúfskel). Rg. 633/2019 (um veiðar á beitukóngi í gildrur). Rg. 188/2014 (um gerð og útbúnað meðaflaskilju við veiðar á uppsjávarfiski). Rg. 542/2014 (um veiðar á rækjustofninum á miðunum við Snæfellsnes), sbr. 431/2015. Rg. 812/2015 (um frádrátt aflaheimilda fyrir úthlutun aflamarks), sbr. 1042/2015. Rg. 940/2016 (um mælingar á fiskilestum). 15. gr. □ 1 Brot gegn 1) ákvæðum laga þessara og reglum settum samkvæmt þeim varða viðurlögum skv. 16.–17. gr. laga þessara, hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau þar að auki varða 1) fangelsi allt að sex árum. □ 2 Beita skal ákvæðum laga um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla vegna brota á lögum þessum eftir því sem við á. 1) L. 82/1998, 239. gr. 16. gr. □ 1 [Við stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot gegn 3.–5. gr. laga þessara skal gera upptæk þau veiðarfæri skips sem notuð hafa verið við hinar ólögmætu veiðar, þar með talda dragstrengi, svo og ólögmætan afla þess. Sama gildir sé skip staðið að veiðum á svæðum þar sem veiðar hafa verið bannaðar með stoð í 1. mgr. 8. gr. og 9.–11. gr.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==