Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands 35 □ 2 Í stað þess að gera afla og veiðarfæri upptæk skv. 1. mgr. er heimilt að gera upptæka fjárhæð sem svarar til andvirðis afla og veiðarfæra samkvæmt mati dómkvaddra kunnáttumanna.] 1) 1) L. 163/2006, 8. gr. 17. gr. □ 1 [Brot gegn… 1) ákvæðum laga þessara, reglum settum samkvæmt lögum þessum eða ákvæðum leyfisbréfa varða sektum sem eigi skulu nema hærri fjárhæð en 4.000.000 kr. eftir eðli og umfangi brots. Við ítrekað brot skal sekt eigi nema lægri fjárhæð en 400.000 kr. og eigi hærri fjárhæð en 8.000.000 kr., sömuleiðis eftir eðli og umfangi brots.] 2) 1) L. 163/2006, 9. gr. 2) L. 22/2005, 3. gr. 18. gr. □ 1 Sektir má jafnt gera lögaðila sem einstaklingi. Þrátt fyrir ákvæði 15. gr. má ákvarða lögaðila sekt þótt sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn, starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga er í þágu hans starfa enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Með sama skilorði má einnig gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa hafa gerst sekir um brot. □ 2 Tilraun og hlutdeild í brotum samkvæmt lögum þessum er refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum. 19. gr. □ 1 Heimilt er að leggja löghald á skip sem fært er til hafnar vegna brota á lögum þessum. Sé slíkt gert er dómara heimilt að láta það laust ef sett er bankatrygging eða önnur jafngild trygging, að hans mati, fyrir greiðslu sektar, sakarkostnaðar og upptöku [skv. 2. mgr. 16. gr.] 1) □ 2 Til tryggingar greiðslu sektar, sakarkostnaðar og upptöku skal vera lögveð í skipinu. □ 3 … 2) □ 4 Sektarfé samkvæmt lögum þessum, svo og andvirði upptæks afla og veiðarfæra skal renna í Landhelgissjóð Íslands. 1) L. 163/2006, 10. gr. 2) L. 88/2008, 233. gr. 20. gr. □ 1 [Heimilt er að gera ólögleg veiðarfæri upptæk. Ólögleg eru þau veiðarfæri eða hluti veiðarfæra sem ekki eru í samræmi við þær reglur sem settar eru um veiðarfæri með stoð í lögum þessum.] 1) 1) L. 163/2006, 11. gr. 21. gr. □ 1 [Fiskistofa skal svipta skip leyfi,… 1) skv. 6. eða 7. gr. laga þessara, ef útgerð eða áhöfn skips eða aðrir þeir sem í þágu útgerðar starfa hafa brotið gegn ákvæðum laganna eða reglum settum samkvæmt þeim. □ 2 [Ef veiðitímabili er lokið áður en ákvörðun Fiskistofu um sviptingu veiðileyfis tekur gildi, eða gildistíma sviptingar lýkur, skal leyfissvipting samkvæmt ákvörðuninni gilda við útgáfu næsta veiðileyfis. Þar til réttaráhrifum leyfissviptingar lýkur er hvorki heimilt að flytja réttindi grásleppuveiðileyfis af bát né réttindi grásleppuveiðileyfis til viðkomandi báts.] 2) □ 3 Við fyrsta brot, sem varðar sviptingu veiðileyfis, skal leyfissvipting ekki standa skemur en eina viku og ekki lengur en tólf vikur eftir eðli og umfangi brots. Við ítrekuð brot skal svipting ekki standa skemur en fjórar vikur og ekki lengur en eitt ár.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==