Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 40 8. gr. □ 1 Eftirlitsmönnum Fiskistofu er heimilt að fara í eftirlitsferðir með íslenskum skipum við veiðar utan íslensku lögsögunnar. Um eftirlit með framkvæmd laga þessara gilda ákvæði laga um stjórn fiskveiða og laga um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum eftir því sem við á. Auk þess skal ráðherra með reglugerð gera íslenskum skipum að sæta því eftirliti sem kveðið er á um í samningum sem Ísland er aðili að. Þá getur ráðherra sett reglur um eftirlit á grundvelli 5. mgr. 4. gr. □ 2 … 1) □ 3 Þá skulu íslensk skip er stunda veiðar utan lögsögu Íslands fullnægja öllum sömu ákvæðum um skil á aflaskýrslum og gilda um veiðar innan lögsögunnar. Að auki skal ráðherra með reglugerð gera íslenskum skipum að fullnægja ákvæðum samninga sem Ísland er aðili að um tilkynningarskyldu og upplýsingagjöf til erlendra stjórnvalda eða alþjóðastofnana. 1) L. 34/2000, 9. gr. 9. gr. □ 1 Íslensk lög og reglur settar samkvæmt þeim varðandi hreinlæti, búnað og innra eftirlit, sem og um meðferð og nýtingu afla, sem gilda um veiðar íslenskra skipa innan lögsögu Íslands, skulu jafnframt gilda um veiðar þeirra utan hennar. Ráðherra er þó heimilt að veita undanþágur varðandi aflanýtingu við veiðar utan lögsögunnar ef fjarlægð frá landi, lengd veiðiferða eða aðrar aðstæður gera slíkt nauðsynlegt. II. KAFLI. Fiskveiðar erlendra skipa. 10. gr □ 1 … 1) 1) L. 22/1998, 16. gr. 11. gr. □ 1 Íslenskum stjórnvöldum er heimilt að gera aðrar þær ráðstafanir gagnvart erlendum skipum vegna veiða þeirra á úthafinu sem nauðsynlegar eru til að framfylgja samningum sem Ísland er aðili að. III. KAFLI. Viðurlög. 12. gr. □ 1 Brot gegn ákvæðum laga þessara og reglum settum samkvæmt þeim varða viðurlögum skv. 13.–14. gr., hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi. □ 2 Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau þar að auki varða ... 1) fangelsi allt að sex árum. □ 3 Beita skal ákvæðum laga um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla við brot á lögum þessum eftir því sem við á. 1) L. 82/1998, 231. gr. 13. gr. □ 1 [Við stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot gegn reglum, sem settar hafa verið skv. 2. málsl. 7. gr. laga þessara, skal gera upptæk þau veiðarfæri skips sem notuð hafa verið við hinar ólögmætu veiðar, þar með talda dragstrengi, svo og ólögmætan afla þess.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==