Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Lög nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands 41 □ 2 Í stað þess að gera afla og veiðarfæri upptæk skv. 1. mgr. er heimilt að gera upptæka fjárhæð sem svarar til andvirðis afla og veiðarfæra samkvæmt mati dómkvaddra kunnáttumanna.] 1) 1) L. 163/2006, 13. gr. 14. gr. □ 1 [Brot gegn … 1) ákvæðum laga þessara, reglum settum samkvæmt lögum þessum eða ákvæðum leyfisbréfa varða sektum sem eigi skulu nema hærri fjárhæð en 4.000.000 kr. eftir eðli og umfangi brots. Við ítrekað brot skal sekt eigi nema lægri fjárhæð en 400.000 kr. og eigi hærri fjárhæð en 8.000.000 kr., sömuleiðis eftir eðli og umfangi brots.] 2) □ 2 Fiskistofa skal svipta lögaðila leyfi til veiða fyrir brot á þessum lögum eftir því sem nánar er fyrir mælt í lögum um umgengni um nytjastofna sjávar. 1) L. 163/2006, 14. gr. 2 ) L. 22/2005, 4. gr. 15. gr. □ 1 Sektir má jafnt gera lögaðila sem einstaklingi. Þrátt fyrir ákvæði 12. gr. má ákvarða lögaðila sekt þótt sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn, starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga er í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Með sama skilorði má einnig gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans, eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa, hafa gerst sekir um brot. □ 2 Tilraun og hlutdeild í brotum gegn lögum þessum er refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum. 16. gr. □ 1 Heimilt er að leggja löghald á skip sem fært er til hafnar vegna brota gegn lögum þessum. Sé það gert er dómara heimilt að láta það laust ef sett er bankatrygging eða önnur jafngild trygging, að hans mati, fyrir greiðslu sektar, sakarkostnaðar og upptöku skv. [2. mgr. 13. gr.] 1) □ 2 Til tryggingar greiðslu sektar, sakarkostnaðar og upptöku skal vera lögveð í skipinu. □ 3 … 2) □ 4 Sektarfé samkvæmt lögum þessum, svo og andvirði upptæks afla og veiðarfæra, skal renna í Landhelgissjóð Íslands. 1) L. 163/2006, 15. gr. 2) L. 88/2008, 233. gr. 17. gr. □ 1 [Heimilt er að gera ólögleg veiðarfæri upptæk. Ólögleg eru þau veiðarfæri eða hluti veiðarfæra sem ekki eru í samræmi við þær reglur sem settar eru um veiðarfæri með stoð í lögum þessum.] 1) 1) L. 163/2006, 16. gr. IV. KAFLI. Ýmis ákvæði. 18. gr. □ 1 Hafi íslensk stjórnvöld á grundvelli milliríkjasamnings veitt heimild til þess að eftirlitsaðilar erlends ríkis fari til eftirlitsstarfa um borð í íslensk fiskiskip utan lögsögu Íslands skal ráðherra með reglugerð kveða nánar á um eftirlit þetta. □ 2 Í reglugerðinni skal m.a. kveða á um heimildir eftirlitsaðilanna til þess að rannsaka meint brot gegn veiðistjórnunarreglum á viðkomandi hafsvæði og um réttarvernd þeirra í samræmi við viðkomandi samning. Einnig skal kveðið á um skyldur skipverja á íslenskum skipum m.a. til þess að ljá atbeina sinn við eftirlitið þegar uppganga fer fram.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==