Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 42 19. gr. □ 1 Ráðherra kveður nánar á um framkvæmd laga þessara með reglugerð. 1) 1) Rg. 364/2019 (um veiðar úr úthafskarfastofnum árið 2019). Rg. 24/1998 (um möskvamæla og framkvæmd möskvamælinga), sbr. 992/2014. Rg. 306/1999 (um úthlutun þorskaflahlutdeildar í Barentshafi), sbr. 397/1999. Rg. 462/2017 (um veiðar á gulllaxi). Rg. 543/2002 (um möskvastærðir og útbúnað varpna til veiða á botnfiski, rækju og humri), sbr. 412/2008, 494/2008 og 432/2018. Rg. 584/2018 (um veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski 2018). Rg. 770/2008 (um fjareftirlit). Rg. 807/2011 (um meðafla skipa sem stunda veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski). Rg. 620/2012 (um takmarkanir á veiðum íslenskra skipa úr deilistofnum í lögsögu annarra ríkja), sbr. 487/2013. Rg. 431/2013 (um stjórn veiða á djúpsjávartegundum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)), sbr. 339/2014. Rg. 433/2013 (um stjórn veiða á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja), sbr. 341/2014 og 611/2014. Rg. 432/2017 (um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)). Rg. 11/2015 (um verndun kóralsvæða á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)). Rg. 175/2015 (um notkun botnveiðarfæra á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)). Rg. 584/2018 (um veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski 2018). Rg. 812/2015 (um frádrátt aflaheimilda fyrir úthlutun aflamarks), sbr. 1042/2015. Rg. 745/2016 (um vigtun og skráningu sjávarafla), sbr. 1011/2017, 91/2018, 617/2018 og 436/2019. Rg. 746/2016 (um afladagbækur), sbr. 92/2018. Rg. 940/2016 (um mælingar á fiskilestum). Rg. 431/2017 (um veiðieftirlit á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO). Rg. 1131/2018 (um veiðar íslenskra skipa á Norðuríshafsþorski árið 2019 innan efnahagslögsögu Noregs). Rg. 437/2019 (um veiðar íslenskra skipa á Norðuríshafsþorski árið 2019 innan efnahagslögsögu Rússlands), sbr. 496/2019. Rg. 349/2019 (um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenskra síldarstofninum árið 2019). 20. gr. □ 1 Lög þessi öðlast þegar gildi. [Ákvæði til bráðabirgða. □ 1 Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 5. gr. skal Fiskistofa úthluta einstökum skipum aflahlutdeild í Norðaustur-Atlantshafsmakrílstofninum á grundvelli tíu bestu aflareynsluára þeirra á árunum 2008–2018, að báðum árum meðtöldum. Hafi skip komið í stað skips sem áunnið hefur sér aflareynslu á þessu tímabili skal það skip sem í staðinn kemur njóta þeirrar aflareynslu. □ 2 Aflahlutdeild í makríl skiptist í tvo flokka, A- og B-flokk. Aflahlutdeild í A-flokki skal úthluta á skip sem stunduðu makrílveiðar á viðmiðunartímabilinu með öðrum veiðarfærum en línu og handfærum. Aflahlutdeild í B-flokki skal úthluta á skip sem stunduðu makrílveiðar á viðmiðunartímabilinu með línu og handfærum.] 1) 1) L. 46/2019, 1. gr.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==