Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 54 Um eftirlit. 4. gr. □ 1 Að því leyti sem fyrirmæli laga fela það ekki öðrum stjórnvöldum hafa eftirlitsmenn Fiskistofu með höndum eftirlit með því hvort sjávarafli er gjaldskyldur samkvæmt lögum þessum. Er [ráðherra] 1) heimilt að kveða nánar á um eftirlit þetta í reglugerð. □ 2 [Ráðherra] 1) er heimilt að kveða á í reglugerð um skyldu útgerðarmanna, fiskverkenda og fiskseljenda til að láta af hendi sérstakar skilagreinar um þann sjávarafla sem þeir hafa til umráða hverju sinni. 1) L. 126/2011, 166. gr. 5. gr. □ 1 Fiskistofu er heimilt að krefja útgerðarmenn, skipstjórnarmenn, fiskverkendur, fiskseljendur og þá sem hafa haft milligöngu um viðskipti með sjávarafla eða afurðir um öll nauðsynleg gögn og upplýsingar sem þeir geta látið í té og varða, að mati Fiskistofu, ákvörðun um hvort sjávarafli kunni að vera gjaldskyldur samkvæmt lögum þessum. Er þeim sem krafðir eru upplýsinga skylt að láta þær af hendi endurgjaldslaust og í því formi sem Fiskistofa mælist til. Fiskistofu er enn fremur heimilt í sama skyni að krefjast aðgangs að bókhaldsgögnum þeirra, sem áður er getið, samningum þeirra, verslunarbréfum og öðrum slíkum gögnum, svo og að skrifstofum þeirra, vinnustöðvum, vinnsluhúsum, vörugeymsluhúsum og öðrum slíkum stöðum til birgðakönnunar og annars eftirlits. □ 2 Í sama tilgangi er Fiskistofu heimilt að krefjast upplýsinga af félögum og félagasamtökum útgerðarmanna, fiskverkenda, fiskseljenda og af félögum annarra sem hlut geta átt að máli, um viðskipti félagsmanna þeirra og aðra starfsemi sem þau hafa gögn eða upplýsingar um. □ 3 Ef Fiskistofa telur fram komin gögn eða upplýsingar ófullnægjandi, óglögg, tortryggileg eða ekki látin í té í umbeðnu formi eða hún telur frekari skýringa þörf á einhverju atriði skal hún skora skriflega á þann sem kann að verða krafinn um gjald skv. 1. gr. að bæta úr því innan ákveðins tíma og láta í té skriflegar skýrslur og þau gögn sem þeir telja þörf á. Ef ekki er bætt úr annmörkum, svar berst ekki innan tiltekins tíma, þau gögn eru ekki send sem óskað er eftir eða fram komin gögn eða upplýsingar eru ófullnægjandi eða tortryggileg að mati Fiskistofu skal hún áætla magn og andvirði sjávarafla eftir þeim gögnum og upplýsingum sem fyrir liggja. Um úrskurðaraðila. 6. gr. □ 1 [Ráðherra] 1) skipar þriggja manna nefnd til að úrskurða álagningu gjalds skv. 1. gr. og jafnmarga menn til vara. Aðalmenn og varamenn skulu skipaðir til þriggja ára í senn og skal einn nefndarmanna skipaður formaður hennar. □ 2 Þeir menn, sem eru skipaðir í nefnd skv. 1. mgr., skulu fullnægja almennum skilyrðum laga til að fá skipun í stöðu í þjónustu ríkisins. Formaður nefndarinnar og varamaður hans, sem tekur sæti formanns í forföllum hans, skulu að auki fullnægja skilyrðum til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. □ 3 Um hæfi nefndarmanna til meðferðar einstakra mála skal farið eftir því sem við á eftir þeim lagareglum sem gilda um hæfi héraðsdómara. Ef nefndarmaður er vanhæfur kveður formaður nefndarinnar til varamann í hans stað. □ 4 Afl atkvæða ræður niðurstöðum nefndar skv. 1. mgr. □ 5 Kostnaður af störfum nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði. 1) L. 126/2011, 166. gr.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==