Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Lög nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla 55 7. gr. □ 1 Ef rökstudd ástæða kemur fram við framkvæmd eftirlits til að ætla að einhver sá, sem fyrirmæli 2. gr. taka til, hafi haft gjaldskyldan sjávarafla til umráða skal Fiskistofa leggja gjald á hlutaðeigandi aðila skv. 1. gr. □ 2 Nú sýna starfsmenn Fiskistofu fram á að verkun, vinnsla eða sala tiltekins aðila á sjávarafla eða afurða úr honum sé umfram uppgefin kaup hans eða aðföng og er þá heimilt að leggja á viðkomandi aðila gjald skv. 1. gr. um mismuninn enda þótt sjávaraflinn verði ekki rakinn til ákveðins veiðiskips eða tímabils. □ 3 Vilji aðili eigi una ákvörðun Fiskistofu getur hann, innan tveggja vikna frá því að hann fékk vitneskju um álagninguna, kært hana til Fiskistofu sem þá skal, innan tveggja vikna frá lokum gagnaöflunar, leggja rökstuddan skriflegan úrskurð á málið. Nú vill kærandi eigi sætta sig við úrskurð Fiskistofu og getur hann þá skotið honum til nefndar skv. 6. gr., enda geri hann það innan tveggja vikna frá því að hann fékk vitneskju um úrskurðinn. □ 4 Er formanni nefndarinnar hefur borist kæra skv. [3. mgr.] 1) skal hann þegar tilkynna það Fiskistofu með ábyrgðarbréfi eða á annan sannanlegan hátt. Tilkynningunni skulu fylgja samrit af kæru, greinargerð kæranda og önnur gögn er kunna að hafa fylgt kærunni. Skal Fiskistofu gefinn kostur á að koma kröfum sínum, athugasemdum og öðrum gögnum á framfæri við nefndina innan tiltekins frests. Fiskistofu er jafnframt rétt að krefjast þess að kveðið verði á um ábyrgð annarra á greiðslu gjaldsins skv. 2. mgr. 2. gr. 1) L. 146/2003, 2. gr. 8. gr. □ 1 Þegar frestur skv. [3. mgr.] 1) 7. gr. er á enda eða fram eru komnar athugasemdir eða gögn málsaðila skal formaður nefndar skv. 1. mgr. 6. gr. kalla hana saman til fundar til að fjalla um kröfuna. Að jafnaði skal reynt að ráða málefninu þegar til lykta á þeim fundi, en telji nefndin þörf frekari upplýsinga eða gagna getur hún gefið málsaðilum kost á öflun þeirra innan tiltekins frests. Heimilt er nefndinni að boða málsaðila eða talsmenn þeirra á sinn fund til að tjá sig nánar um málefnið ef hún telur ástæðu til áður en úrskurður gengur. 1) L. 146/2003, 3. gr. 9. gr. □ 1 Úrskurðir nefndar skv. 1. mgr. 6. gr. um álagningu gjalds skv. 1. gr. skulu vera rökstuddir og færðir í sérstaka gerðabók. Í þeim skal tekin afstaða til þess hvort afli sé gjaldskyldur, hver fjárhæð gjaldsins skuli vera og hverjum beri að greiða það. Hafi þess verið krafist skal jafnframt kveðið á um hvort aðrir ábyrgist greiðslu gjaldsins skv. 2. mgr. 2. gr. Heimild til álagningar gjalds nær til gjalds vegna afla síðustu fjögurra fiskveiðiára sem næst eru á undan því fiskveiðiári sem álagning Fiskistofu fer fram á. □ 2 Þegar úrskurður hefur gengið skal formaður án tafar senda [ráðherra], 1) Fiskistofu og þeim sem krafa hefur beinst að eintak úrskurðarins í ábyrgðarpósti eða á annan sannanlegan hátt. 1) L. 126/2011, 166. gr. Um innheimtu. 10. gr. □ 1 Fiskistofa fer með innheimtu gjalds skv. 1. gr. [Ráðherra] 1) er þó heimilt að fela innheimtu- mönnum ríkissjóðs eða öðrum aðilum innheimtu þess. □ 2 Gjald skv. 1. gr. fellur í gjalddaga við álagningu. Ber það dráttarvexti samkvæmt ákvæðum vaxtalaga frá því 30 dagar eru liðnir frá gjalddaga þess.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==