Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 56 □ 3 Álagning gjalds eða úrskurður um gjaldtöku skv. 1. gr. eru aðfararhæfar ákvarðanir, bæði gagnvart þeim sem gjald hefur verið lagt á og þeim sem bera ábyrgð á greiðslu þess samkvæmt úrskurði. Má Fiskistofa krefjast fullnustu með fjárnámi þegar liðnir eru 30 dagar frá dagsetningu álagningar eða uppkvaðningu úrskurðar. [Ef gjald, sem lagt hefur verið á útgerð skips sem veitt hefur hinn gjaldskylda afla, hefur ekki verið greitt þegar sá tími er kominn að krefjast má fullnustu þess með fjárnámi skal Fiskistofa svipta hlutaðeigandi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni þar til skuldin greiðist eða samið hefur verið um greiðslu hennar. Gildir þetta einnig þótt eigendaskipti hafi orðið á skipi, enda hafi eigendaskiptin ekki orðið við nauðungaruppboð eða gjaldþrotaskipti. Standi útgerð ekki við samning um greiðslu skuldar er Fiskistofu heimilt að svipta skip fyrirvaralaust leyfi til veiða í atvinnuskyni.] 2) □ 4 Ágreining um skyldu til greiðslu gjalds skv. 1. gr. eða um ábyrgð á greiðslu þess má bera undir dómstóla sé það gert innan 30 daga frá uppkvaðningu úrskurðar skv. 6. gr. Slíkt málskot frestar ekki fullnustu úrskurðar. 1) L. 126/2011, 166. gr. 2) L. 146/2003, 4. gr. 11. gr. □ 1 Ef [ráðherra] 1) telur veiðar á gjaldskyldum afla samkvæmt lögum þessum brjóta gegn refsiákvæðum annarra laga er honum rétt að tilkynna það ríkissaksóknara. Slík tilkynning eða … 2) rannsókn eða höfðun [sakamáls] 2) í tilefni hennar raskar því ekki að gjald verði lagt á eftir fyrirmælum þessara laga. 1) L. 126/2011, 166. gr. 2) L. 88/2008, 234. gr. Um dagsektir. 12. gr. □ 1 Hver sá, sem tregðast við að láta Fiskistofu í té upplýsingar er varða gjaldskyldu annarra eða tregðast við að veita aðgang að aðstöðu eða gögnum, sbr. 5. gr., skal sæta dagsektum. [Ráðherra] 1) kveður á um skyldu til greiðslu dagsekta og mega þær nema allt að 10.000 kr. á dag. Dagsektir má innheimta með fjárnámi. 1) L. 126/2011, 166. gr. Um gildistöku o.fl. 13. gr. □ 1 Lög þessi öðlast gildi 1. september l992. □ 2 [Úrskurðir kveðnir upp á grundvelli laga nr. 32 19. maí 1976, um upptöku ólöglegs sjávarafla, með áorðnum breytingum, skulu vera aðfararhæfir skv. 3. mgr. 10. gr. laga þessara.] 1) 1) L. 26/1993, 1. gr. 14. gr. □ 1 Heimilt er að leggja á gjald samkvæmt fyrirmælum laga þessara þótt sú háttsemi, sem leiðir til álagningar þess, kunni að hafa átt sér stað fyrir gildistöku þeirra ef heimilt hefði verið að gera viðkomandi afla upptækan samkvæmt fyrirmælum laga nr. 32/1976 og upptaka aflans eða andvirðis hans hefur ekki þegar farið fram. □ 2 [Ráðherra] 1) setur reglugerð 2) um nánari framkvæmd laga þessara. 1) L. 126/2011, 166. gr. 2) Rg. 470/2012, sbr. 522/2013 og 1028/2013. Rg. 456/2017.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==