Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 58 □ 5 Heimilt er að veiða rækju við Snæfellsnes frá og með 1. maí og til og með 15. mars ár hvert. 3. gr. □ 1 Leyfilegur heildarafli tilgreindur í lestum í eftirfarandi tegundum, á viðkomandi tímabilum: Tegund/Svæði Lestir Skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar Veiðitímabil ͏1. Hörpudiskur 0 2. Innfjarðarækja: Innfjarðarækja skiptist: Arnarfjörður Breiðafjörður, norðurfirðir Eldeyjarsvæði Húnaflói Ísafjarðardjúp Skagafjörður Skjálfandaflói Öxarfjörður □ 2 Leyfilegur heildarafli í innfjarðarækju er miðaður við bráðabirgðatillögur Hafrannsókna- stofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna og verður ákvörðun um heildarafla innfjarðarækju endurskoðuð að fengnum nýjum tillögum stofnunarinnar. □ 3 Veiðitímabil innfjarðarækju er samkvæmt reglugerð 1) um rækjuveiðar innfjarða. Heimilt er með tilkynningu til leyfishafa að breyta veiðitíma á ákveðnum veiðisvæðum innfjarðarækju, að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna. 1) Rg. 258/2012, sbr. 375/2012, 854/2012, 865/2012, 964/2012, 355/2013, 379/2013, 540/2013, 936/2013, 519/2014, 660/2014, 464/2015, 503/2015, 1148/2015, 593/2016, 1198/2016, 384/2017, 415/2018, 431/2018 og 475/2019. III. KAFLI Frádráttur aflaheimilda fyrir úthlutun aflamarks og skiptimarkaður með aflamark. 4. gr. □ 1 Fyrir úthlutun aflamarks allra tegunda til einstakra skipa, sem háðar eru takmörkun á leyfilegum heildarafla fiskveiðiárið 2019/2020 skal draga 5,3% frá úthlutun hverrar tegundar, sbr 3., 5. og 6. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006. Skal því ráðstafað samkvæmt 5. mgr. 6, gr., 6. gr. a, 1. og 2. tl. 1. mgr. 10. gr., 10. gr. a og 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. 5. gr. □ 1 Fiskistofa skal sjá um framkvæmd skipta, sbr. 6. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og annast skiptimarkað fyrir aflamark. □ 2 Við framkvæmd skiptimarkaðar skal Fiskistofa auglýsa hverju sinni eftir tilboðum í það magn aflamarks sem ráðherra ákveður. Auglýsa skal eftir tilboðum í tiltekið magn aflamarks í einstakri tegund í skiptum fyrir aflamark í einni af eftirfarandi tegundum: Þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa, svo lengi sem aflamark er til ráðstöfunar. Fiskistofa hefur heimild til að binda tilboð við tiltekna tegund til að ná markmiðum 2. ml. 1. mgr. 4. gr. þessarar reglugerðar. Fiskistofa skal auglýsa eftir tilboðum eigi síðar en 10. hvers mánaðar, frá og með 10. október til og með 10. júlí. Ákveði ráðherra aflamark til úthlutunar á öðrum tíma en 1. september, getur Fiskistofa auglýst eftir tilboðum á öðrum tíma. Tilboð skulu berast Fiskistofu fyrir kl. 16.00 sjö dögum frá birtingu auglýsingar á heimasíðu Fiskistofu. Þegar tilboð berst Fiskistofu er það bindandi fyrir aðila. Þó er aðila heimilt að afturkalla tilboð sitt enda berist afturköllunin Fiskistofu áður en tilboðsfrestur

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==