Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Reglugerð nr. 674/2019, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2019/2020 59 er liðinn. Fiskistofu er einungis heimilt að veita upplýsingar um tilboð eftir að tilboðsfrestur er liðinn og skal þá birta upplýsingarnar á heimasíðu Fiskistofu. Birta skal einungis upplýsingar um samþykkt tilboð. □ 3 Fiskistofa ákveður form tilboða. Í tilboði skal útgerðaraðili skips tilgreina magn þeirrar tegundar sem boðið er í og magn þeirrar tegundar sem boðið er í skiptum, svo og önnur atriði sem Fiskistofa ákveður. □ 4 Fiskistofa skal samþykkja það tilboð sem hæst er. Við mat tilboða skal Fiskistofa, þar sem tilboð geta falið í sér mismunandi tegundir sem endurgjald, miða við meðalverð tegunda í viðskiptum með aflamark, sem birt er á vef Fiskistofu, undanfarna 30 daga eða eftir atvikum síðasta mánuð sem viðskipti voru með tegund. Ef hæstu tilboð eru jöfn skal magni skipt hlutfallslega á milli tilboðsgjafa. Ef hæsta tilboð er aðeins í hluta þess magns sem í boði er skal það samþykkt. Síðan skal næst hæsta tilboðið samþykkt, þar til því aflamarki sem var í boði hefur verið ráðstafað. Fiskistofa skal hafna tilboðum í tegund þegar þorskígildi uppboðstegundar Fiskistofu er lægra en 50% þorskígildis skiptitegundar (þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa). □ 5 Ef aflamark í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu eða gullkarfa sem látið hefur verið í skiptum, er umfram það aflamark sem innheimta skal, er heimilt að bjóða þær tegundir á skiptimarkaði. □ 6 Aflamark sem látið er í skiptum telst ekki flutt af skipi í skilningi 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. IV. KAFLI Úthafsrækjuveiðisvæði. 6. gr. □ 1 Til úthafsrækju telst rækja, sem veidd er á svæðum, sem skilgreind eru í reglugerð 1) um úthafsrækjuveiðisvæði o.fl. □ 2 Úthafsrækju sem veidd er á Dohrnbanka vestan 26°V og norðan 65°30´N skal skrá sérstaklega. Skip sem stunda veiðar á Dohrnbanka skulu búin fjarskiptabúnaði, sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til Landhelgisgæslunnar um staðsetningu skipsins á klukkustundar fresti, frá því skipið lætur úr höfn og þar til það kemur til hafnar að nýju til löndunar afla. 1) Rg. 396/2005, sbr. 667/2005, 239/2009, 282/2009 og 617/2015. V. KAFLI Skipting leyfilegs afla. 7. gr. □ 1 Veiðiheimildum í þeim tegundum sem heildarafli er takmarkaður af, skv. 2. og 3. gr. skal skipt milli einstakra skipa í samræmi við aflahlutdeild eða krókaaflahlutdeild þeirra í viðkomandi tegund. Úthlutað aflamark/krókaaflamark hvers skips í hverri einstakri tegund ræðst annars vegar af aflahlutdeild/krókaaflahlutdeild skipsins í viðkomandi tegund en hins vegar af úthlutuðu heildaraflamarki í tegundinni skv. 2. og 3. gr.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==