Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Reglugerð nr. 674/2019, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2019/2020 63 c. þinglýst samþykki þeirra, sem eiga þinglýst samningsveð í skipinu frá og með 1. janúar 1998. □ 2 Flutningur aflahlutdeildar öðlast ekki gildi fyrr en staðfesting Fiskistofu liggur fyrir. Aldrei er heimilt að flytja aflahlutdeild milli skipa, leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. □ 3 Umsóknir um flutning aflahlutdeildar milli fiskiskipa ásamt fullnægjandi fylgigögnum skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en einum mánuði fyrir lok fiskveiðiárs. Berist umsókn innan mán- aðar, hefur flutningur aflahlutdeildar ekki áhrif á úthlutun aflamarks komandi fiskveiðiárs. □ 4 Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, ein- staklinga eða lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild en tilgreint er í 13. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar og krókaaflahlutdeildar milli skipa skal eigandi þess skips sem flutt er frá greiða samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu. IX. KAFLI Veiðiskylda. 13. gr. □ 1 Veiði fiskiskip minna en 50% á fiskveiðiári af úthlutuðu aflamarki sínu og aflamarki sem flutt hefur verið frá fyrra fiskveiðiári, í þorskígildum talið, fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips skv. 14. gr. Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á. Hið sama á við þegar skipi er haldið til veiða utan lögsögu á tegundum sem samið hefur verið um veiðistjórn á og ekki teljast til deilistofna. □ 2 Tefjist skip frá veiðum í a.m.k. fjóra mánuði vegna tjóns, meiri háttar bilana eða endurbóta hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar samkvæmt þessari grein. X. KAFLI Þorskígildisstuðlar. 14. gr. □ 1 Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2019 til 31. ágúst 2020 eru þessir: Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar Blálanga 0,65 Kolmunni 0,09 Skarkoli 0,94 Djúpkarfi 0,84 Langa 0,70 Skrápflúra 0,37 Grálúða 2,27 Langlúra 0,59 Skötuselur 1,81 Gullkarfi 0,69 Litli karfi 0,35 Steinbítur 0,59 Gulllax 0,39 Loðna 0,13 Ufsi 0,55 Humar (slitinn) 9,20 Makríll 0,20 Úthafsrækja 1,24 Innfjarðarækja 1,09 Norsk-íslensk síld 0,15 Ýsa 1,00 Íslensk sumargotssíld 0,13 Rækja við Snæfellsnes 1,28 Þorskur 1,00 Keila 0,39 Sandkoli 0,27 Þykkvalúra/sólkoli 1,39 □ 2 Ofangreindir stuðlar gilda við mat á því hvernig veiðiheimildir eru nýttar og varðandi færslu milli tegunda eftir því sem við á, sbr. 11. og 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==