Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 64 XI. KAFLI Ýmis ákvæði. 15. gr. □ 1 Skipstjóra er skylt að halda fiski um borð í veiðiskipum aðgreindum eftir tegundum. Verði slíku ekki við komið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Ennfremur er skylt að láta vigta afla samkvæmt ákvæðum III. kafla laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og reglugerðar um vigtun og skráningu sjávarafla. □ 2 Afla af skrápflúru og sandkola sem fenginn er á því veiðisvæði sem tilgreint er í 4. mgr. 2. gr. skal haldið aðskildum frá öðrum afla af þessum tegundum og hann veginn og skráður sérstaklega. □ 3 Skipstjórar fiskiskipa, sem halda til úthafsrækjuveiða á Dohrnbanka, sbr. 2. mgr. 6. gr., skulu tilkynna sérstaklega til Fiskistofu hvenær þær hefjast og hvenær þeim lýkur. □ 4 Ef haldið er til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands skal, þegar haldið er úr höfn, tilkynna Fiskistofu hvar fyrirhugað sé að stunda veiðar. Þá skal tilkynna hvenær veiðar hefjast og hvenær þeim lýkur, nema annað sé ákveðið í sérstökum reglugerðum um viðkomandi veiðar. Í tilkynning- unni komi fram, eftir því sem við á, áætlaður afli um borð, sundurliðaður eftir tegundum. □ 5 Í einni og sömu veiðiferð er óheimilt að stunda veiðar bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Þetta gildir þó ekki, haldi skip til veiða utan lögsögunnar á úthafskarfa, síld, loðnu, kol- munna, túnfiski eða makríl, enda sé Fiskistofu tilkynnt um slíkt í samræmi við reglur þar að lútandi. □ 6 Heimilt er þó með samþykki Fiskistofu að víkja frá banni, skv. 5. mgr., enda hafi afli og aflasamsetning um borð í fiskiskipi verið staðfest með fullnægjandi hætti að mati Fiskistofu, áður en skip flytur sig milli veiðisvæða utan og innan lögsögunnar. □ 7 Þegar skip stundar veiðar utan lögsögu Íslands, í fiskveiðilögsögu annars ríkis eða á alþjóðlegu hafsvæði, og um er að ræða veiðar sem grundvallast á samningi sem íslensk stjórnvöld eru ekki aðilar að, skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu mánaðarlega um veiðisvæði, veiðitíma, löndunarhöfn og landaðan afla sundurliðað eftir tegundum. 16. gr. □ 1 Útgerðum skipa sem fengið hafa leyfi Fiskistofu til að vinna afla um borð er skylt að lokinni veiðiferð að skila sérstakri skýrslu um afla til Fiskistofu á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til. □ 2 Þá er skipstjórum fiskiskipa skylt að halda sérstakar afladagbækur, sbr. reglugerð 1) um afladagbækur. □ 3 Kaupendum afla er skylt að skila til Fiskistofu skýrslum um móttekinn afla í því formi, sem Fiskistofa ákveður, sbr. reglugerð 2) um skýrsluskil vegna viðskipta með sjávarafla. 1) Rg. 746/2016, sbr. 92/2018. 2) Rg. 994/2013. 17. gr. □ 1 Heimilt er að nýta báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, til veiða í frístundum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, enda séu engin veiðarfæri um borð önnur en handfæri án sjálfvirknibúnaðar og/eða sjóstangir. Óheimilt er að selja aflann eða fénýta á annan hátt. □ 2 Skipstjórar báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni og fara til veiða, skv. 1. mgr., skulu tilkynna Fiskistofu um það áður en veiðiferð hefst. 18. gr. □ 1 Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==