Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Reglugerð nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla 77 42. gr. □ 1 Saltaðar afurðir skulu vegnar skv. ákvæðum 7. gr. □ 2 Endurvigtun á saltfiski skal framkvæmd þannig að afurðir sem legið hafa minnst fjóra daga í pækli og teljast full pækilsaltaðar (vatnsinnihald minna en 60%) skulu teknar úr pæklinum og allt laust salt skal slegið af fiskinum. Vigtun afurða fer fram í samræmi við ákvæði II. kafla. Auglýsing nr. 213/2010 um reglur um lágmarksúrtak og framkvæmd vigtunar við úrtaksvigtun á ekki við um saltaðar afurðir. □ 3 Við útreikning á afla skal leggja til grundvallar meðalþunga eininga sem teknar voru í úrtak af hverri afurð, þunga umbúða og nýtingarstuðla. 43. gr. □ 1 Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtun á afurðum skipa skv. þessum kafla skal ganga frá og gefa út vigtarnótu þar sem eftirtalin atriði koma fram: 1. Nafn skips og skrásetningarnúmer ásamt umdæmisnúmeri. 2. Löndunarhöfn og löndunardagur. 3. Viðtakandi afurða. 4. Fyrir hverja afurð komi eftirtaldar upplýsingar fram: a. Fjöldi eininga skv. talningu við löndun. b. Fjöldi eininga í úrtaki. c. Heildarþungi úrtaks. d. Nettóþungi úrtaks (heildarþungi að frádregnum þunga bretta, umbúða og íss). e. Nettóþungi einingar (nettóþungi úrtaks deilt með fjölda eininga í úrtaki). f. Nettóþungi afurðar (nettóþungi einingar margfaldaður með heildarfjölda eininga). X. KAFLI Eldisfiskur. 44. gr. □ 1 Þyngd fisks sem fangaður er til áframeldis skal ákvörðuð við flutning farms í eldiskví og skal beita annarri af eftirfarandi aðferðum: 1. Heildarmagn fiska skal vegið með viðurkenndri krókavog. 2. Heildarfjöldi fiska skal talinn og 5% þeirra skulu valin af handahófi en þó að lágmarki 30 fiskar og að hámarki 200 fiskar og skal það sem þannig er valið vegið með löggiltri vog, meðalþyngd fisks fundin og uppreiknuð á heildarfjölda fiska. □ 2 Farmur telst það magn fiska sem flutt er í einni ferð í eldiskví. Vigtun og talning fiska skal framkvæmd af vigtarmanni sem hlotið hefur löggildingu til vigtunar. □ 3 Fiskistofa getur heimilað notkun lífmassamælis til ákvörðunar aflamagns. Rekstraraðila ber að tilkynna Fiskistofu um aðferð við ákvörðun aflamagns. □ 4 Sé fiski safnað í sérstaka kví til geymslu (söfnunarkví) skal skipstjóri á veiðiskipi sem losar fisk í söfnunarkví gefa út undirritaða staðfestingu þar sem fram kemur áætlað magn afla og skal staðfestingin send á hafnarvog í lok hvers veiðidags til aflaskráningar. Ekki má geyma fisk lengur en einn mánuð í söfnunarkví. 45. gr. □ 1 Skipstjóri fiskiskips og rekstraraðili eldisstöðvar bera ábyrgð á því að afli sé veginn í samræmi við reglugerð þessa. □ 2 Aðili sem ákvarðar þyngd fisks skal fylla út og undirrita vigtarnótu þar sem eftirfarandi atriði skulu koma fram:

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==