Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 78 1. Rekstrarleyfisnúmer og auðkenni kvíar. 2. Nafn skips og skrásetningarnúmer ásamt umdæmisnúmeri. 3. Dagsetning flutnings fisks. 4. Nafn og kennitala seljanda og kaupanda fisks. 5. Veiðarfæri. 6. Heildarfjöldi fiska og meðalþyngd fiska í úrtaki, sundurliðað eftir tegundum. 7. Aflamagn, sundurliðað eftir tegundum. □ 3 Vigtarnóta skal send til viðkomandi hafnar strax að vigtun lokinni. 46. gr. □ 1 Við slátrun skal eldisfiskur veginn í samræmi við ákvæði I., II. eða III. kafla reglugerðar þessarar eftir því sem við á. □ 2 Þó getur Fiskistofa, samkvæmt skriflegri beiðni aðila og að fenginni umsögn hafnaryfirvalda á viðkomandi löndunarstað, heimilað vigtun eldisfisks, sem landað hefur verið lifandi til slátrunar, með öðrum hætti. Slíkt leyfi skal þó því aðeins veitt að innra eftirlit fyrirtækisins sé traust auk þess sem vigtunarbúnaður sé löggiltur og vigtun framkvæmd af löggiltum vigtarmanni. Áður en leyfi er veitt skal Fiskistofa meta hvort búnaður umsækjanda sé með þeim hætti að honum sé unnt að fara í hvívetna að skilyrðum leyfisins. Leyfi sem veitt er samkvæmt þessari heimild skal bundið við nafn og kennitölu umsækjanda og veitir leyfið rétt til vigtunar á eldisfiski til slátrunar í því húsnæði sem tilgreint er í leyfisbréfi og með þeim skilyrðum sem þar er kveðið á um. Leyfið gildir til allt að tveggja ára. Vigtun sem fyrirhuguð er á grundvelli þessa leyfis skal tilkynna Fiskistofu með að lágmarki þriggja virkra daga fyrirvara og skal í tilkynningu koma fram hve miklu er áætlað að slátra ásamt fisktegund. XI. KAFLI Hafnaryfirvöld. 47. gr. □ 1 Hafnaryfirvöld skulu tryggja að upplýsingar um vigtun landaðs afla, sbr. 10. gr., séu færðar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu. Skráning afla samkvæmt vigtarnótu vigtunarleyfishafa skal fara fram svo skjótt sem verða má og aldrei síðar en einum virkum degi eftir að vigtarnóta liggur fyrir hjá viðkomandi höfn. □ 2 Berist upplýsingar um endurvigtun frá endurvigtunarleyfishafa ekki til löndunarhafnar innan frests sem veittur er til vigtunar skv. 1. mgr. 16. gr. eða berist vigtarnóta frá öðrum aðila en þeim sem tilgreindur var sem viðtakandi aflans við vigtun á hafnarvog, gildir vigtun á hafnarvog, skv. 7. gr. nema Fiskistofa heimili annað. □ 3 Berist upplýsingar um nettóvigtun ekki frá heimavigtunarleyfishafa innan frests sem veittur er til að skila vigtarnótu, sbr. 3. mgr. 23. gr., skal brúttóvigtun gilda, sbr. 1. mgr. 23. gr., nema Fiskistofa heimili annað. 48. gr. □ 1 Hafnaryfirvöld á hverjum löndunarstað skulu hafa umsjón með vigtun afla og söfnun upp- lýsinga um landaðan afla. Hafnaryfirvöld skulu hafa umsjón með að þeim reglum sem settar hafa verið um vigtun á hverjum löndunarstað sé framfylgt. □ 2 Starfsmenn hafnarvoga skulu sannreyna að uppgefin tegund vigtaðs afla sé rétt, m.a. með beinni skoðun úrtaks úr lönduðum afla eftir því sem við á. Sama á við varðandi afla sem gefinn er upp sem undirmálsafli. □ 3 Verði hafnaryfirvöld vör við að brotið sé gegn ákvæðum reglugerðar þessarar skulu þau til- kynna það Fiskistofu.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==