Stjórn fiskveiða 2020-2021
Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 14 að endurskipuleggja stjórn nýtingar, sé um að ræða gróf eða endurtekin brot á lögum þessum, öðrum lögum á sviði fiskveiðistjórnar eða skilyrðum leyfis, sé leyfið ekki nýtt eða sé það aðeins nýtt í takmörkuðum mæli.] 2) 1) Rg. 90/2018. 2) L. 49/2017, 5. gr. c. III. KAFLI. Framkvæmd og eftirlit. 16. gr. □ 1 Ráðherra getur sett nánari reglur 1) varðandi framkvæmd laga þessara. 1) Rg. 54/2003 ( um mælingar á vinnslunýtingu um borð í skipum sem vinna afla um borð). Rg. 165/2020, sbr. Rg. 181/2020, sbr. Rg. 254/2020, sbr. Rg. 297/2020, sbr. Rg. 462/2017 ( um veiðar á gulllaxi). Rg. 54/2003 ( um mælingar á vinnslunýtingu um borð í skipum sem vinna afla um borð). Rg. 659/2014 (um vigtun og skráningu meðafla við veiðar á uppsjávarfiski). R g. 188/2020 . Rg. 807/2011 ( um meðafla skipa sem stunda veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski). Rg. 964/2019. Rg. 431/2013 ( um stjórn veiða á djúpsjávartegundum á samningssvæði Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)), sbr . 339/2014. Rg. 433/2013 ( um stjórn veiða á samningssvæði Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja), sbr. 341/2014 o g 611/2014. Rg. 741/2019. Rg. 994/2013 (um skýrsluskil vegna viðskipta með sjávarafla). Rg. 432/2017 ( um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)). Rg. 964/2019. Rg. 11/2015 ( um verndun kóralsvæða á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)). Rg. 175/2015 ( um notkun botnveiðarfæra á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)) . Rg. 745/2016 ( um vigtun og skráningu sjávarafla), sbr. 1011/2017, 91/2018, 617/2018 og 436/2019, sbr. 325/2020. Rg. 753/2019. Rg. 431/2017 (um veiðieftirlit á samningssvæði Norðvestur- Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar), NAFO). Rg. 432/2017 (um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)). Rg. 90/2018 (um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni). Rg. 711/2018. Rg. 741/2019. Rg. 742/2019, sbr. 993/2019. Rg. 962/2019. Rg. 964/2019. Rg. 188/2020. 17. gr. □ 1 Skipstjórnarmenn veiðiskipa, sem hljóta veiðileyfi í atvinnuskyni skv. 5. gr., skulu halda sérstakar afladagbækur[…] 1) [Heimilt er að innheimta gjald fyrir afladagbækur samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu, 2) sbr. 5. gr. laga nr. 36/1992, um Fiskistofu, með síðari breytingum.] 3) Skal með reglugerð 4) kveða nánar á um þær upplýsingar sem skrá skal í afladagbækur, form þeirra og skil til Fiskistofu. [Fiskistofa skal svipta skip leyfi til veiða í atvinnuskyni vegna vanskila á afladagbókum og skal leyfissvipting standa þar til skil hafa verið gerð eða skýringar hafa verið gefnar á ástæðum vanskila.] 5) □ 2 Útgerðarmönnum, skipstjórnarmönnum og kaupendum afla, svo og umboðsmönnum, útflytjendum, flutningsaðilum, bönkum, lánastofnunum og opinberum stofnunum, er skylt að láta ráðuneytinu eða Fiskistofu ókeypis í té og í því formi, sem ráðherra ákveður, allar þær upplýsingar sem unnt er að láta í té og nauðsynlegar eru taldar vegna eftirlits með framkvæmd laga þessara. □ 3 Eigendaskipti á fiskiskipi, eða aðra breytingu á útgerðaraðild fiskiskips, sem leyfi hefur til veiða í atvinnuskyni, skal innan 15 daga frá undirritun samnings tilkynna til Fiskistofu. Bæði seljandi og kaupandi, eða leigusali og leigutaki þegar um leigu er að ræða, skulu sameiginlega undirrita tilkynningu um breytta útgerðaraðild á sérstöku eyðublaði sem Fiskistofa leggur til í þessu skyni. Afrit af kaupsamningi eða leigusamningi skal fylgja tilkynningu. Ábyrgð á tilkynningu til Fiskistofu hvílir á kaupanda skips eða leigutaka þess eftir atvikum. Ráðherra getur í reglugerð kveðið nánar á um framkvæmd tilkynningarskyldu. Vanefndir á tilkynningarskyldu varða viðurlögum skv. 25. gr. 1) L. 88/2020, 5. gr. 2) Gjaldskrá Fiskistofu nr. 5/2020. 3) L. 67/2015, 6. gr. 4) Rg. 298/2020. Rg. 745/2016, sbr. 1011/2017, 91/2018, 617/2018, 436/2019 og 325/2020. 5) L. 163/2006, 6. gr.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==