Stjórn fiskveiða 2020-2021

Lög nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða 15 18. gr. □ 1 Fiskistofa annast eftirlit með framkvæmd laga þessara og hefur í því skyni sérstaka eftirlitsmenn í sinni þjónustu. □ 2 Jafnframt því sem þessir eftirlitsmenn sinna verkefnum skv. 10. gr. laga nr. 79 26. maí 1997 og eftirliti með reglum settum samkvæmt heimild í þeim lögum skulu þeir fylgjast með löndun, vigtun og vinnslu afla, enn fremur útflutningi afla eða afurða eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum, reglugerðum settum samkvæmt þeim og í erindisbréfi. 1) □ 3 Eftirlitsmönnum er heimilt að fara í veiðiferðir með fiskiskipum og að fara um borð í skip til athugunar á farmi og veiðarfærum og er skipstjórum skylt að veita þeim aðstoð, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 79 26. maí 1997. Enn fremur skal þeim heimill aðgangur að öllum vinnslusölum fiskverkana og birgðageymslum. □ 4 Ráðherra getur með reglugerð 2) ákveðið að settur skuli, á kostnað útgerða, sjálfvirkur eftirlitsbúnaður til fjareftirlits um borð í fiskiskip. 1) Erbr. 87/1995. 2) Rg. 770/2008. IV. KAFLI. Þorskígildi. 19. gr. □ 1 [Ráðuneytið] 1) skal reikna þorskígildi fyrir 15. júlí ár hvert fyrir hverja tegund sem sætir ákvörðun um stjórn veiða, sbr. 20. gr., og taka mið af tólf mánaða tímabili sem hefst 1. maí næstliðið ár og lýkur 30. apríl. Sé tekin ákvörðun um stjórn veiða á tegund sem ekki hefur áður sætt slíkri ákvörðun skal þegar reikna þorskígildi fyrir tegundina miðað við sama tímabil og greinir í 1. málsl. Þorskígildi skulu reiknuð sem hlutfall verðmætis einstakra tegunda sem sæta ákvörðun um stjórn veiða af verðmæti slægðs þorsks. Til grundvallar verðmætaútreikningi skal leggja heildaraflamagn og heildarverðmæti þessara tegunda samkvæmt upplýsingum Fiskistofu þar um. Þegar fiskur er seldur ferskur erlendis skal miða við 88% af söluverðmæti hans. Varðandi botnfisk, að undanskildum karfa, skal miða við slægðan fisk. Miða skal við slitinn humar. 1) L. 126/2011, 440. gr. V. KAFLI. Veiðigjald. 20. gr. □ 1 [Allir þeir sem fá úthlutað aflaheimildum samkvæmt lögum þessum, eða landa afla fari stjórn veiða fram með öðrum hætti en með úthlutun aflamarks, skulu greiða veiðigjöld svo sem í lögum um veiðigjöld greinir.] 1) 1) L. 75/2012, 1. gr. 21. gr. – 23. gr. a. … 1) 1) L. 75/2012, 2. gr. VI. KAFLI. Viðurlög o.fl. 24. gr. □ 1 [[Fiskistofa skal veita áminningar og svipta skip leyfi til veiða í atvinnuskyni, eða eftir atvikum leyfi til strandveiða [eða leyfi til öflunar sjávargróðurs] 1) , fyrir brot á lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim eftir því sem nánar er fyrir mælt í lögum um umgengni um nytjastofna sjávar.] 1) [Ef veiðitímabili er lokið áður en ákvörðun Fiskistofu um sviptingu veiðileyfis tekur gildi, eða gildistíma sviptingar lýkur, skal leyfissvipting samkvæmt ákvörðuninni gilda við útgáfu næsta veiðileyfis.] 2) Ákvörðunum Fiskistofu um áminningar og veiðileyfissviptingar verður

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==