Stjórn fiskveiða 2020-2021
Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 32 7. gr. □ 1 Grásleppuveiðar skulu háðar sérstöku leyfi Fiskistofu og eiga þeir bátar einir kost á slíku leyfi sem rétt áttu til leyfis á grásleppuvertíðinni 1997 samkvæmt reglum þar um. Ráðherra skal í reglugerð 1) kveða nánar á um skipulag grásleppuveiða og veiðitíma samkvæmt þessari málsgrein. Getur ráðherra m.a. ákveðið að leyfin séu bundin við ákveðið svæði og að aðeins hljóti leyfi til veiða á tilteknu svæði skip sem skráð eru á því svæði. Þá getur ráðherra sett reglur um heimildir til flutnings leyfa til grásleppuveiða milli báta. □ 2 Sé talin þörf á að koma í veg fyrir staðbundna ofnýtingu á tilteknum stofni, óeðlilegan meðafla af öðrum tegundum en veiði beinist að eða önnur óæskileg áhrif veiða getur ráðherra ákveðið að veiðar úr tilteknum nytjastofni eða á tilteknu svæði séu háðar leyfi Fiskistofu. Sama á við ef þörf er á að skipuleggja veiðar úr stofnum sem ekki er stjórnað með skiptingu heildarafla milli einstakra skipa, sbr. 7. gr. laga nr. 38 15. maí 1990, með síðari breytingum, t.d. vegna óvissu um veiðiþol viðkomandi stofns. Ráðherra skal í reglugerð 2) kveða nánar á um skilyrði fyrir veitingu leyfa samkvæmt þessari málsgrein. Getur ráðherra sett almennar og svæðisbundnar reglur og m.a. ákveðið að leyfin séu bundin við ákveðið svæði og að aðeins hljóti leyfi til veiða á tilteknu svæði tiltekinn fjöldi skipa, skip sem skráð eru á því svæði, skip af ákveðinni stærð eða gerð eða skip sem áður hafa stundað tilteknar veiðar. 1) Rg. 165/2020, sbr. 181/2020, 254/2020 og 297/2020. 2) . Rg. 964/2019 . Rg. 470/2012 ( um veiðar á lúðu), sbr . 522/2013 o g 1028/2013. Rg. 461/2017 (um veiðisvæði hörpudisks). Rg. 671/2018 (um veiðar á kröbbum). 8. gr. □ 1 Ráðherra er heimilt með reglugerð að skipta veiðisvæðum milli veiðarfæra með því að banna notkun ákveðinna veiðarfæra á ákveðnum svæðum í tiltekinn tíma. Áður en ákvarðanir um slíka skiptingu veiðisvæða eru teknar skal leita álits samtaka þeirra útgerðar- og sjómanna sem ætla má að slík skipting veiðisvæða varði mestu hverju sinni. □ 2 Þá er ráðherra heimilt að banna notkun allra eða tiltekinna gerða veiðarfæra á svæðum þar sem veiðarfæri geta valdið skemmdum á neðansjávarstrengjum og vatnslögnum. 9. gr. □ 1 Ráðherra skal gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að sporna við því að stundaðar séu veiðar sem skaðlegar geta talist með tilliti til hagkvæmrar nýtingar nytjastofna og [varðveislu viðkvæmra hafsvæða]. 1) Getur ráðherra með reglugerð 2) m.a. ákveðið sérstök friðunarsvæði þar sem veiðar með öllum eða tilteknum veiðarfærum eru bannaðar. Ráðherra ákveður hvort reglugerðir um friðunarsvæði gildi um ákveðinn tíma eða séu ótímabundnar. Áður en ákvarðanir eru teknar samkvæmt þessari grein skal að jafnaði leita umsagnar [Hafrannsóknastofnunar]. 3) □ 2 Heimilt er að banna tímabundið allar veiðar eða notkun tiltekinna veiðarfæra á ákveðnu svæði sé þess talin þörf vegna tilrauna eða vísindalegra rannsókna [Hafrannsóknastofnunar]. 3) 1) L. 149/2007, 1. gr. 2) Rg. 965/2019. Rg. 965/2019. Rg. 963/2019, sbr. 1307/2019 og 176/2020. Rg. 960/2019. Rg. 942/2016 (um verndun kóralsvæða út af Suður- og Suðausturlandi). 3) L. 157/2012, 9. gr. 10. gr. □ 1 Veiðieftirlitsmönnum Fiskistofu er heimilt að fara í veiðiferðir með fiskiskipum og er skipstjórum þeirra skylt að veita þeim alla aðstoð og aðstöðu um borð í skipum sínum til þess að þeir geti sinnt eftirliti með veiðum. Í erindisbréfum til eftirlitsmanna, sem útgefin eru af ráðuneytinu, skal nánar kveðið á um starfsskyldur veiðieftirlitsmanna um borð í veiðiskipum. □ 2 Verði veiðieftirlitsmenn Fiskistofu, leiðangursstjórar skipa, sem eru á vegum [Hafrannsóknastofnunar], 1) eða starfsmenn Landhelgisgæslunnar varir við að stundaðar séu skaðlegar veiðar skv. 3. mgr. skulu þeir þegar tilkynna það til [Hafrannsóknastofnunar] 1) eða þeirra aðila sem stofnunin tilnefnir í því skyni.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==