Stjórn fiskveiða 2020-2021
Lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands 33 □ 3 Skaðlegar veiðar skv. 2. mgr. teljast veiðar þegar smáfiskur í afla fer yfir þau viðmiðunarmörk sem ráðherra hefur ákveðið að fengnum tillögum [Hafrannsóknastofnunar]. 1) Sama gildir um veiðar á smáhumri, smárækju eða öðrum tegundum nytjastofna, enda hafi verið sett viðmiðunarmörk varðandi nýtingu hlutaðeigandi stofns. Þá teljast það enn fremur skaðlegar veiðar í þessu sambandi ef telja verður að veiðarnar séu ekki í samræmi við aðrar ákvarðanir sem teknar hafa verið um hagkvæma nýtingu viðkomandi nytjastofna. □ 4 Að fengnum upplýsingum skv. 2. mgr. getur [Fiskistofa] 2) bannað tilteknar veiðar á ákveðnum svæðum í allt að 14 sólarhringa með tilkynningu til strandstöðva og í útvarpi. Jafnframt skal [Hafrannsóknarstofnun] 2) og stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynnt um skyndilokanir. Ráðherra skal setja nánari reglur 3) um framkvæmd slíkra skyndilokana. □ 5 [Ráðuneytið] 4) skal, í samráði við [Hafrannsóknastofnun] 1) , áður en skyndilokun fellur úr gildi, ákveða til hvaða ráðstafana skuli grípa ef ástæða er talin til frekari friðunar á viðkomandi svæði. [Hafrannsóknastofnun] 1) er þó heimilt að grípa til skyndilokunar svæðis aftur í allt að sjö daga sé þess talin þörf þar sem ekki liggja fyrir nægar upplýsingar um ástand svæðisins eða ef talið er að skyndilokun svæðisins aftur tryggi að ekki verði um að ræða frekari skaðlegar veiðar á því svæði. Ákvörðun um til hvaða ráðstafana verði gripið í framhaldi af lokun skv. 4. mgr. skal tilkynnt a.m.k. einum sólarhring áður en fyrri skyndilokun fellur úr gildi. □ 6 Heimilt er ráðuneytinu að leyfa einstökum fiskiskipum að stunda tilraunaveiðar á svæðum sem lokað hefur verið tímabundið skv. 4. mgr. Slíkt skal þó jafnan gert undir eftirliti Fiskistofu, [Hafrannsóknastofnunar] 1) eða Landhelgisgæslunnar og skal skipstjórnarmönnum skylt að fara að fyrirmælum eftirlitsaðila varðandi tilraunaveiðarnar. 1) L. 157/2012, 9. gr. 2) L. 8 8/2020, 2. gr. 3) Augl. 166/2008. 4) L. 126/2011, 247. gr. 11. gr. □ 1 Heimilt er að grípa til skyndilokana veiðisvæða skv. 10. gr. vegna upplýsinga sem komnar eru frá skipstjórum um að skaðlegar veiðar fari fram á ákveðnu svæði. Skilyrði þess eru eftirfarandi: 1. Að upplýsingar berist frá a.m.k. þremur skipstjórum sem telji að skaðlegar veiðar séu stundaðar á tilteknu svæði. 2. Upplýsingarnar séu studdar nýjum mælingum á aflasamsetningu hjá viðkomandi skipum, sbr. 1. tölul., enda séu mælingarnar framkvæmdar á fullnægjandi hátt að mati [Hafrannsókna- stofnunar] 1) og fyrir liggi ákveðnar tillögur frá skipstjórunum um mörk þess svæðis sem lagt er til að lokað verði. □ 2 Ekki verði viðkomið að staðreyna upplýsingarnar án tafar með mælingum frá eftirlitsaðilum skv. 10. gr. □ 3 Skyndilokanir samkvæmt þessari grein gilda í allt að viku. Að öðru leyti gilda ákvæði 10. gr. um skyndilokanir þessar eftir því sem við á. 1) L. 157/2012, 9. gr. 12. gr. □ 1 Sé veiðieftirlitsmaður Fiskistofu um borð í veiðiskipi getur hann óskað eftir því að skipstjóri láti kasta eða leggi veiðarfæri á tilteknu svæði í tilraunaskyni, enda hafi hann rökstudda ástæðu til að ætla að önnur skip stundi skaðlegar veiðar á því svæði. Slíka tilraun skal gera með þeim hætti að hún tefji veiðar skipsins óverulega og valdi útgerðinni ekki teljandi óhagræði. Skal framkvæmd tilraunarinnar ákveðin í samráði við skipstjóra skipsins.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==