Stjórn fiskveiða 2020-2021

Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 40 □ 2 […] 1) □ 3 Þá skulu íslensk skip er stunda veiðar utan lögsögu Íslands fullnægja öllum sömu ákvæðum um skil á aflaskýrslum og gilda um veiðar innan lögsögunnar. Að auki skal ráðherra með reglugerð gera íslenskum skipum að fullnægja ákvæðum samninga sem Ísland er aðili að um tilkynningarskyldu og upplýsingagjöf til erlendra stjórnvalda eða alþjóðastofnana. 1) L. 34/2000, 9. gr. 9. gr. □ 1 Íslensk lög og reglur settar samkvæmt þeim varðandi hreinlæti, búnað og innra eftirlit, sem og um meðferð og nýtingu afla, sem gilda um veiðar íslenskra skipa innan lögsögu Íslands, skulu jafnframt gilda um veiðar þeirra utan hennar. Ráðherra er þó heimilt að veita undanþágur varðandi aflanýtingu við veiðar utan lögsögunnar ef fjarlægð frá landi, lengd veiðiferða eða aðrar aðstæður gera slíkt nauðsynlegt. II. KAFLI. Fiskveiðar erlendra skipa. 10. gr. □ 1 [ … ] 1) 1) L. 22/1998, 16. gr. 11. gr. □ 1 Íslenskum stjórnvöldum er heimilt að gera aðrar þær ráðstafanir gagnvart erlendum skipum vegna veiða þeirra á úthafinu sem nauðsynlegar eru til að framfylgja samningum sem Ísland er aðili að. III. KAFLI. Viðurlög. 12. gr. □ 1 Brot gegn ákvæðum laga þessara og reglum settum samkvæmt þeim varða viðurlögum skv. 13.–14. gr., hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi. □ 2 Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau þar að auki varða [ … ] 1) fangelsi allt að sex árum. □ 3 Beita skal ákvæðum laga um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla við brot á lögum þessum eftir því sem við á. 1) L. 82/1998, 231. gr. 13. gr. □ 1 [Við stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot gegn reglum, sem settar hafa verið skv. 2. málsl. 7. gr. laga þessara, skal gera upptæk þau veiðarfæri skips sem notuð hafa verið við hinar ólögmætu veiðar, þar með talda dragstrengi, svo og ólögmætan afla þess. □ 2 Í stað þess að gera afla og veiðarfæri upptæk skv. 1. mgr. er heimilt að gera upptæka fjárhæð sem svarar til andvirðis afla og veiðarfæra samkvæmt mati dómkvaddra kunnáttumanna.] 1) 1) L. 163/2006, 13. gr. 14. gr. □ 1 [Brot gegn … 1) ákvæðum laga þessara, reglum settum samkvæmt lögum þessum eða ákvæðum leyfisbréfa varða sektum sem eigi skulu nema hærri fjárhæð en 4.000.000 kr. eftir eðli og umfangi brots. Við ítrekað brot skal sekt eigi nema lægri fjárhæð en 400.000 kr. og eigi hærri fjárhæð en 8.000.000 kr., sömuleiðis eftir eðli og umfangi brots.] 2)

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==