Stjórn fiskveiða 2020-2021

Lög nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands 41 □ 2 Fiskistofa skal svipta lögaðila leyfi til veiða fyrir brot á þessum lögum eftir því sem nánar er fyrir mælt í lögum um umgengni um nytjastofna sjávar. 1) L. 163/2006, 14. gr. 2 ) L. 22/2005, 4. gr. 15. gr. □ 1 Sektir má jafnt gera lögaðila sem einstaklingi. Þrátt fyrir ákvæði 12. gr. má ákvarða lögaðila sekt þótt sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn, starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga er í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Með sama skilorði má einnig gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans, eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa, hafa gerst sekir um brot. □ 2 Tilraun og hlutdeild í brotum gegn lögum þessum er refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum. 16. gr. □ 1 Heimilt er að leggja löghald á skip sem fært er til hafnar vegna brota gegn lögum þessum. Sé það gert er dómara heimilt að láta það laust ef sett er bankatrygging eða önnur jafngild trygging, að hans mati, fyrir greiðslu sektar, sakarkostnaðar og upptöku skv. [2. mgr. 13. gr.] 1) □ 2 Til tryggingar greiðslu sektar, sakarkostnaðar og upptöku skal vera lögveð í skipinu. □ 3 […] 2) □ 4 Sektarfé samkvæmt lögum þessum, svo og andvirði upptæks afla og veiðarfæra, skal renna í Landhelgissjóð Íslands. 1) L. 163/2006, 15. gr. 2) L. 88/2008, 233. gr. 17. gr. □ 1 [Heimilt er að gera ólögleg veiðarfæri upptæk. Ólögleg eru þau veiðarfæri eða hluti veiðarfæra sem ekki eru í samræmi við þær reglur sem settar eru um veiðarfæri með stoð í lögum þessum.] 1) 1) L. 163/2006, 16. gr. IV. KAFLI. Ýmis ákvæði. 18. gr. □ 1 Hafi íslensk stjórnvöld á grundvelli milliríkjasamnings veitt heimild til þess að eftirlitsaðilar erlends ríkis fari til eftirlitsstarfa um borð í íslensk fiskiskip utan lögsögu Íslands skal ráðherra með reglugerð kveða nánar á um eftirlit þetta. □ 2 Í reglugerðinni skal m.a. kveða á um heimildir eftirlitsaðilanna til þess að rannsaka meint brot gegn veiðistjórnunarreglum á viðkomandi hafsvæði og um réttarvernd þeirra í samræmi við viðkomandi samning. Einnig skal kveðið á um skyldur skipverja á íslenskum skipum m.a. til þess að ljá atbeina sinn við eftirlitið þegar uppganga fer fram. 19. gr. □ 1 Ráðherra kveður nánar á um framkvæmd laga þessara með reglugerð. 1) 1) Rg. 364/2019 (um veiðar úr úthafskarfastofnum árið 2019). Rg. 24/1998 (um möskvamæla og framkvæmd möskvamælinga), sbr. 992/2014. Rg. 306/1999 (um úthlutun þorskaflahlutdeildar í Barentshafi), sbr. 397/1999. Rg. 462/2017 (um veiðar á gulllaxi). Rg. 543/2002 (um möskvastærðir og útbúnað varpna til veiða á botnfiski, rækju og humri), sbr. 412/2008, 494/2008 og 432/2018. Rg. 770/2008 (um fjareftirlit). Rg. 807/2011 (um meðafla skipa sem stunda veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski). Rg. 620/2012 (um takmarkanir á veiðum íslenskra skipa úr deilistofnum í lögsögu annarra ríkja), sbr. 487/2013. Rg. 431/2013 (um stjórn veiða á djúpsjávartegundum á samningssvæði Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)), sbr. 339/2014. Rg. 433/2013 (um stjórn veiða á samningssvæði Norðaustur-

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==