Stjórn fiskveiða 2020-2021

Lög nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Ísland 43 Lög um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. 1. gr. □ 1 Fiskveiðar og vinnslu sjávarafla um borð í skipum í fiskveiðilandhelgi Íslands, eins og hún er skilgreind í lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, mega eftirtaldir aðilar einir stunda: 1. Íslenskir ríkisborgarar og aðrir íslenskir aðilar. 2. Íslenskir lögaðilar sem að öllu leyti eru í eigu íslenskra aðila eða lögaðila sem uppfylla eftirfarandi skilyrði: a. Eru undir yfirráðum íslenskra aðila. b. Eru ekki í eigu erlendra aðila að meira leyti en 25% sé miðað við hlutafé eða stofnfé. Fari eignarhlutur íslensks lögaðila í lögaðila, sem stundar veiðar eða vinnslu í fiskveiðilandhelgi Íslands, ekki yfir 5% má eignarhlutur erlendra aðila þó vera allt að 33%. c. Eru að öðru leyti í eigu íslenskra ríkisborgara eða íslenskra lögaðila sem eru undir yfirráðum íslenskra aðila. □ 2 Með vinnslu sjávarafurða í 1. mgr. er átt við frystingu, söltun, herslu og hverja þá aðra verkun sem ver fisk og aðrar sjávarafurðir skemmdum, þar með taldar bræðsla og mjölvinnsla. Til vinnslu í þessu sambandi telst hins vegar ekki reyking, súrsun, niðursuða, niðurlagning og umpökkun afurða í neytendaumbúðir eða frekari vinnsla afurða til að gera þær hæfari til dreifingar, neyslu eða matreiðslu. □ 3 Til fiskveiða og vinnslu sjávarafla um borð í skipum í fiskveiðilandhelgi Íslands má aðeins hafa íslensk skip og gildir það einnig um vinnslu sjávarafla skv. 2. málsl. 2. mgr. Íslensk skip eru þau skip sem skráð eru hér á landi samkvæmt lögum um skráningu íslenskra skipa. 2. gr. □ 1 Erlendum veiðiskipum og vinnsluskipum er óheimilt að hafast við í fiskveiðilandhelgi Íslands. Þó er þeim heimil óslitin sigling um fiskveiðilandhelgina, enda hafi þau tilkynnt um veru sína skv. 4. gr. Með ákvæði þessu eru ekki skert þau réttindi sem veitt hafa verið eða kunna að verða veitt öðrum ríkjum með milliríkjasamningum. 3. gr. □ 1 Erlendum skipum er heimilt að landa eigin afla, umskipa afla og selja í íslenskum höfnum og sækja þangað alla þá þjónustu er varðar útgerð skips. □ 2 [Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er erlendum skipum óheimilt að koma til íslenskrar hafnar í eftirfarandi tilvikum: 1. Skip stundar veiðar eða vinnslu á afla úr sameiginlegum nytjastofnum sem veiðast bæði innan og utan íslenskrar fiskveiðilandhelgi og íslensk stjórnvöld hafa ekki gert milliríkjasamning um nýtingu á. 2. Skip stundar veiðar eða vinnslu á afla í bága við samninga um nýtingu og varðveislu lifandi auðlinda hafsins sem Ísland er aðili að, þ.m.t. skip sem hafa verið skráð hjá svæðisbundnum fiskveiðistjórnarstofnunum, og sigla ekki undir fána aðildarríkja þeirra, fyrir brot gegn reglum settum á grundvelli slíkra samninga. 3. Skip stundar veiðar eða vinnslu á afla og er í eigu eða rekstri aðila sem á eða rekur skip sem fellur undir 2. tölul.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==