Stjórn fiskveiða 2020-2021

Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 44 □ 3 Óheimilt er að veita skipum sem um ræðir í 2. mgr., skipum sem flytja afla þeirra og skipum sem þjónusta þau, sem og útgerðum þessara skipa, þjónustu, þ.m.t. í íslenskum höfnum, í fiskveiðilandhelgi Íslands og utan hennar. Komist skip sem um ræðir í 2. mgr. til íslenskrar hafnar er óheimilt að landa eða umskipa afla í höfn og skal án tafar vísa skipunum úr höfn eftir að þau hafa verið skoðuð af eftirlitsaðilum og eftir atvikum veitt neyðaraðstoð. Kaupendum afla, svo og umboðsmönnum, útflytjendum, flutningsaðilum, bönkum, lánastofnunum og opinberum stofnunum er skylt að láta ráðuneytinu eða Fiskistofu í té, ókeypis og í því formi sem þessi stjórnvöld ákveða, allar þær upplýsingar sem unnt er að láta í té og nauðsynlegar eru taldar vegna eftirlits með framkvæmd þessarar greinar.] 1) □ 4 Ráðherra getur ákveðið að ákvæði [2.-3. mgr.] 1) gildi gagnvart skipum ef fánaríki skipsins er ekki aðili að samningi sem gildir um stjórn þeirra veiða sem viðkomandi skip stundar eða fylgir ekki þeim reglum sem settar eru samkvæmt þeim samningi, enda sé Ísland aðili að honum. Þá getur ráðherra ákveðið að ákvæði [2.-3. mgr.] 1) taki til erlendra skipa sé slíkt talið nauðsynlegt til verndar lifandi auðlindum hafsins. □ 5 Ákvæði þessarar greinar takmarka ekki rétt erlendra skipa til löndunar, umskipunar eða þjónustu hér á landi samkvæmt alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að eða gildandi þjóðarétti. Ráðherra er heimilt að víkja frá ákvæði [2.–4. mgr.] 1) þegar sérstaklega stendur á. Ákvæði þessarar greinar skerða ekki rétt erlendra skipa til að koma til hafnar þurfi þau á neyðarþjónustu að halda og heimilt er þeim að leita vars við strendur landsins, enda verði Landhelgisgæslu Íslands tilkynnt um það. □ 6 [Landhelgisgæslan skal, ef við á, krefja fánaríki skips um staðfestingu, innan frests sem ákveðinn er í reglugerð, til samræmis við ákvæði 4. gr., um að afli um borð í skipinu hafi ekki verið veiddur í bága við ákvæði 1.–3. tölul. 2. mgr., skipið hafi ekki verið við starfsemi sem greinir í 1. málsl. 3. mgr. eða stundað veiðar eða vinnslu afla þannig að gangi gegn verndartilgangi skv. 4. mgr. Í þessum tilvikum gilda fyrirmæli 3. mgr. um skipið þar til fullnægjandi staðfesting hefur borist eða ella þykir sýnt, að höfðu samráði við Fiskistofu eða ráðherra ef við á, að skipið falli ekki undir ákvæði þessarar greinar. Þó er heimilt, hafi skipið komið til hafnar, að landa afla úr skipinu til geymslu meðan beðið er staðfestingar fánaríkis. Óheimilt er að ráðstafa aflanum frekar og er Fiskistofu heimilt að setja hann undir innsigli. Falli skipið og afli þess undir ákvæði þessarar greinar skal aflinn gerður upptækur og skipi þegar vísað úr höfn. Hafi staðfesting fánaríkis ekki borist innan tiltekins hæfilegs tíma frá því að hennar var óskað, sbr. reglugerð, skal gera aflann upptækan.] 1) 1) L. 38/2015, 1. gr. 4. gr. □ 1 Erlend veiðiskip og vinnsluskip skulu tilkynna Landhelgisgæslu Íslands með sex klukkustunda fyrirvara um komu sína í og siglingu út úr fiskveiðilandhelgi Íslands og gefa upp staðsetningu. Meðan á siglingu þeirra í landhelginni stendur skulu þau á [a.m.k.] 1) tólf klukkustunda fresti gefa upp staðsetningu, stefnu og hraða. [Erlend veiðiskip og vinnsluskip sem sigla um íslenska fiskveiðilandhelgi skulu hafa uppi fána síns ríkis til auðkenningar.] 1) Auk þess skulu þau erlendu skip sem hyggjast leita hafnar hér á landi tilkynna Landhelgisgæslunni um magn afla og tegundir um borð í skipinu, hvaða veiðar skipið hefur stundað og á hvaða svæði og hvaða þjónustu skipið sækir til viðkomandi hafnar. […] 1) 1) L. 38/2015, 2. gr. 5. gr. □ 1 Um veiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelginni skulu, ef ekki er um annað samið í milliríkjasamningum, gilda ákvæði laga og reglugerða sem gilda um veiðar íslenskra skipa í fiskveiðilandhelginni varðandi veiðarfæri, friðunarsvæði og veiðitíma, sbr. 8.–14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nýtingu nytjastofna og eftirlit með fiskveiðum, þar með talda færslu afladagbóka, sbr. 2., 9. og 13. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==