Stjórn fiskveiða 2020-2021
Lög nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla 53 Lög um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Um gjaldtöku. 1. gr. □ 1 [Ólögmætur er sá sjávarafli: a. sem er umfram það aflamark eða krókaaflamark sem veiðiskip hefur eða umfram hámarksafla sem veiðiskipi er settur með öðrum hætti, b. sem fenginn er án þess að tilskilin veiðileyfi hafi verið fyrir hendi, c. sem fenginn er utan leyfilegra veiðidaga, nema um eðlilegan meðafla sé að ræða, d. sem fenginn er með óleyfilegum veiðarfærum, e. sem fenginn er á svæði þar sem viðkomandi veiðar eru bannaðar, f. sem 2. mgr. 7. gr. tekur til.] 1) □ 2 Greiða skal sérstakt gjald samkvæmt fyrirmælum laga þessara fyrir veiðar, verkun, vinnslu eða viðskipti með ólögmætan sjávarafla. □ 3 [Gjald skv. 2. mgr. skal renna í sérstakan sjóð í vörslu [ráðuneytisins] 2) og skal verja fé úr honum til rannsókna og nýsköpunar á sviði sjávarútvegs og til eftirlits með fiskveiðum. Sjóður þessi nefnist Verkefnasjóður sjávarútvegsins. Ráðherra skal skipa stjórn Verkefnasjóðsins sem skilar tillögum til ráðherra um ráðstöfun fjárins. Ráðherra setur reglur 3) um stjórn sjóðsins og úthlutun úr honum.] 4) □ 4 Nú hefur verið lagt hald á afla og hann gerður upptækur eftir ákvæðum annarra laga og kemur þá ekki til greiðslu gjalds skv. 2. mgr. 1) L. 19/2016 2) L. 126/2011, 166. gr. 3) Rgl. 972/2019. 4) L. 146/2003, 1. gr. Um greiðsluskyldu. 2. gr. □ 1 Gjald skv. 1. gr. skal að jafnaði lagt á þann sem hefur gert út skip eða bát sem veitt hefur gjaldskyldan afla. Ef uppvíst verður um gjaldskyldan afla án þess að unnt reynist að ákvarða hver hafi veitt hann má þó leggja gjaldið á þann sem hefur tekið við aflanum til verkunar eða vinnslu eða hefur haft milligöngu um sölu hans eða afurða úr honum hvort sem er hér á landi eða erlendis, enda hafi þeir vitað eða mátt vita að um ólögmætan sjávarafla var að ræða. □ 2 Gjald skv. 1. gr. verður aðeins lagt á einn þeirra sem taldir eru upp í 1. mgr. Aðrir þeir, sem þar eru taldir og sem uppvíst er að hafi átt þátt í veiðum, verkun, vinnslu eða viðskiptum með gjaldskyldan afla, ábyrgjast þó greiðslu gjaldsins sem eigin skuld með þeim sem gjald er lagt á ef ætla má að þeir hafi vitað eða mátt vita að um ólögmætan sjávarafla var að ræða. 3. gr. □ 1 Gjald skv. 1. gr. skal nema andvirði gjaldskylds afla. □ 2 Ef ekki verður staðreynt hver sú fjárhæð hefur verið skal gjaldið nema því verði sem fengist hefur fyrir samsvarandi afla á þeim stað og því tímabili sem hann barst að landi. Verði gjaldskyldur afli ekki heimfærður til ákveðins tímabils skal verðleggja hann á grundvelli meðalverðs fyrir samsvarandi afla á viðkomandi fiskveiðiári. □ 3 Ef ekki verður staðreynt af fyrirliggjandi gögnum hvert hafi verið magn eða andvirði gjaldskylds afla skal það áætlað eftir því sem segir í 5. gr.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==