Stjórn fiskveiða 2020-2021

Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 54 Um eftirlit. 4. gr. □ 1 Að því leyti sem fyrirmæli laga fela það ekki öðrum stjórnvöldum hafa eftirlitsmenn Fiskistofu með höndum eftirlit með því hvort sjávarafli er gjaldskyldur samkvæmt lögum þessum. Er [ráðherra] 1) heimilt að kveða nánar á um eftirlit þetta í reglugerð. □ 2 [Ráðherra] 1) er heimilt að kveða á í reglugerð um skyldu útgerðarmanna, fiskverkenda og fiskseljenda til að láta af hendi sérstakar skilagreinar um þann sjávarafla sem þeir hafa til umráða hverju sinni. 1) L. 126/2011, 166. gr. 5. gr. □ 1 Fiskistofu er heimilt að krefja útgerðarmenn, skipstjórnarmenn, fiskverkendur, fiskseljendur og þá sem hafa haft milligöngu um viðskipti með sjávarafla eða afurðir um öll nauðsynleg gögn og upplýsingar sem þeir geta látið í té og varða, að mati Fiskistofu, ákvörðun um hvort sjávarafli kunni að vera gjaldskyldur samkvæmt lögum þessum. Er þeim sem krafðir eru upplýsinga skylt að láta þær af hendi endurgjaldslaust og í því formi sem Fiskistofa mælist til. Fiskistofu er enn fremur heimilt í sama skyni að krefjast aðgangs að bókhaldsgögnum þeirra, sem áður er getið, samningum þeirra, verslunarbréfum og öðrum slíkum gögnum, svo og að skrifstofum þeirra, vinnustöðvum, vinnsluhúsum, vörugeymsluhúsum og öðrum slíkum stöðum til birgðakönnunar og annars eftirlits. □ 2 Í sama tilgangi er Fiskistofu heimilt að krefjast upplýsinga af félögum og félagasamtökum útgerðarmanna, fiskverkenda, fiskseljenda og af félögum annarra sem hlut geta átt að máli, um viðskipti félagsmanna þeirra og aðra starfsemi sem þau hafa gögn eða upplýsingar um. □ 3 Ef Fiskistofa telur fram komin gögn eða upplýsingar ófullnægjandi, óglögg, tortryggileg eða ekki látin í té í umbeðnu formi eða hún telur frekari skýringa þörf á einhverju atriði skal hún skora skriflega á þann sem kann að verða krafinn um gjald skv. 1. gr. að bæta úr því innan ákveðins tíma og láta í té skriflegar skýrslur og þau gögn sem þeir telja þörf á. Ef ekki er bætt úr annmörkum, svar berst ekki innan tiltekins tíma, þau gögn eru ekki send sem óskað er eftir eða fram komin gögn eða upplýsingar eru ófullnægjandi eða tortryggileg að mati Fiskistofu skal hún áætla magn og andvirði sjávarafla eftir þeim gögnum og upplýsingum sem fyrir liggja. Um úrskurðaraðila. 6. gr. □ 1 […] 1) 1) L. 88/2020, 23. gr. 7. gr. □ 1 Ef rökstudd ástæða kemur fram við framkvæmd eftirlits til að ætla að einhver sá, sem fyrirmæli 2. gr. taka til, hafi haft gjaldskyldan sjávarafla til umráða skal Fiskistofa leggja gjald á hlutaðeigandi aðila skv. 1. gr. □ 2 Nú sýna starfsmenn Fiskistofu fram á að verkun, vinnsla eða sala tiltekins aðila á sjávarafla eða afurða úr honum sé umfram uppgefin kaup hans eða aðföng og er þá heimilt að leggja á viðkomandi aðila gjald skv. 1. gr. um mismuninn enda þótt sjávaraflinn verði ekki rakinn til ákveðins veiðiskips eða tímabils. □ 3 […] 1) □ 4 […] 1) 1) L. 88/2020, 24. gr.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==