Stjórn fiskveiða 2020-2021

Lög nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla 55 8. gr. □ 1 Nú vill aðili eigi sætta sig við ákvörðun Fiskistofu um álagningu gjalds samkvæmt lögum þessum getur hann þá skotið henni til ráðherra til úrskurðar, enda geri hann það innan tveggja vikna frá því að hann fékk vitneskju um ákvörðunina. 1) 1) L. 88/2020, 25. gr. 9. gr. □ 1 […] 1) Hafi þess verið krafist skal jafnframt kveðið á um hvort aðrir ábyrgist greiðslu gjaldsins skv. 2. mgr. 2. gr. Heimild til álagningar gjalds nær til gjalds vegna afla síðustu fjögurra fiskveiðiára sem næst eru á undan því fiskveiðiári sem álagning Fiskistofu fer fram á. □ 2 […] 1) 1) L. 88/2020, 26. gr. Um innheimtu. 10. gr. □ 1 Fiskistofa fer með [álagningu og] 1) innheimtu gjalds skv. 1. gr. [Ráðherra] 2) er þó heimilt að fela innheimtumönnum ríkissjóðs eða öðrum aðilum innheimtu þess. □ 2 Gjald skv. 1. gr. fellur í gjalddaga við álagningu. Ber það dráttarvexti samkvæmt ákvæðum vaxtalaga frá því 30 dagar eru liðnir frá gjalddaga þess. □ 3 Álagning gjalds eða úrskurður um gjaldtöku skv. 1. gr. eru aðfararhæfar ákvarðanir, bæði gagnvart þeim sem gjald hefur verið lagt á og þeim sem bera ábyrgð á greiðslu þess samkvæmt úrskurði. Má Fiskistofa krefjast fullnustu með fjárnámi þegar liðnir eru 30 dagar frá dagsetningu álagningar eða uppkvaðningu úrskurðar. [Ef gjald, sem lagt hefur verið á útgerð skips sem veitt hefur hinn gjaldskylda afla, hefur ekki verið greitt þegar sá tími er kominn að krefjast má fullnustu þess með fjárnámi skal Fiskistofa svipta hlutaðeigandi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni þar til skuldin greiðist eða samið hefur verið um greiðslu hennar. Gildir þetta einnig þótt eigendaskipti hafi orðið á skipi, enda hafi eigendaskiptin ekki orðið við nauðungaruppboð eða gjaldþrotaskipti. Standi útgerð ekki við samning um greiðslu skuldar er Fiskistofu heimilt að svipta skip fyrirvaralaust leyfi til veiða í atvinnuskyni.] 3) □ 4 Ágreining um skyldu til greiðslu gjalds skv. 1. gr. eða um ábyrgð á greiðslu þess má bera undir dómstóla sé það gert innan 30 daga frá uppkvaðningu úrskurðar [skv. 8. gr.] 1) Slíkt málskot frestar ekki fullnustu úrskurðar. 1) L. 88/2020, 27. gr 2) L. 126/2011, 166. gr. 3) L. 146/2003, 4. gr. 11. gr. □ 1 Ef [ráðherra] 1) telur veiðar á gjaldskyldum afla samkvæmt lögum þessum brjóta gegn refsiákvæðum annarra laga er honum rétt að tilkynna það ríkissaksóknara. Slík tilkynning eða … 2) rannsókn eða höfðun [sakamáls] 2) í tilefni hennar raskar því ekki að gjald verði lagt á eftir fyrirmælum þessara laga. 1) L. 126/2011, 166. gr. 2) L. 88/2008, 234. gr. Um dagsektir. 12. gr. □ 1 Hver sá, sem tregðast við að láta Fiskistofu í té upplýsingar er varða gjaldskyldu annarra eða tregðast við að veita aðgang að aðstöðu eða gögnum, sbr. 5. gr., skal sæta dagsektum. [Ráðherra] 1) kveður á um skyldu til greiðslu dagsekta og mega þær nema allt að 10.000 kr. á dag. Dagsektir má innheimta með fjárnámi. 1) L. 126/2011, 166. gr.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==