Stjórn fiskveiða 2020-2021
Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 62 aflamarks, auk upplýsinga um verð aflamarks nema skipin séu í eigu sama aðila. Eigandi og útgerðaraðili þess skips sem aflamarkið er flutt frá skulu undirrita og leggja fram tilkynningu um flutning. □ 4 Tilkynningu um flutning aflamarks skal fylgja staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs um að fyrir liggi samningur útgerðar og áhafnar þess skips sem aflamarkið er flutt til, um fiskverð til viðmiðunar hlutaskiptum. Skal sá samningur uppfylla kröfur sem Verðlagsstofa skiptaverðs, sbr. lög um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna. Telji Verðlagsstofa skiptaverðs að gildissvið laganna nái ekki yfir viðkomandi skip, skal staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs lúta að því. □ 5 Sá sem tilkynnir um flutning aflamarks skal greiða flutningsgjald fyrir hverja tilkynningu samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu. 1) Þá skal útgerð greiða skv. gjaldskrá Fiskistofu 1) hafi komið til skeytasendingar Fiskistofu til útgerðar og skipstjóra, skv. 1. mgr. 14. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar. Gjalddagi reiknings er við útgáfu hans og eindagi 15 dögum síðar. Gjaldið er óendurkræft. Hafi reikningur ekki verið greiddur á eindaga er Fiskistofu heimilt að stöðva frekari flutning aflamarks frá og til viðkomandi fiskiskips. □ 6 Heimilt er Fiskistofu að gera þjónustusamninga um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks milli fiskiskipa sem eru í eigu sama einstaklings eða lögaðila og skal greiða samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu 1) fyrir slíka samninga fyrir hvert fiskveiðiár. Sækja skal til Fiskistofu um gerð þjónustusamnings um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til. Á umsóknareyðublöðunum skulu koma fram þær upplýsingar sem Fiskistofa telur nauðsynlegar og óskar þar eftir. Verði breytingar á atriðum sem útgerð hefur tilgreint í umsókn sinni skal hlutaðeigandi útgerð tilkynna Fiskistofu skriflega um breytingarnar án tafar. □ 7 Útgerð ber alfarið ábyrgð á öllum rafrænum tilkynningum um flutning aflamarks sem fram- kvæmdar eru samkvæmt þjónustusamningi hennar við Fiskistofu og skal útgerðin tryggja að óvið- komandi aðilar komist ekki yfir aðgang hennar til að tilkynna Fiskistofu rafrænt um flutning afla- marks. Þjónustusamningur um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks fellur úr gildi verði vanskil á greiðslu gjalds fyrir samninginn og ef hlutaðeigandi útgerð hefur brotið gegn reglum er gilda um flutning aflamarks eða skilyrðum sem sett hafa verið varðandi rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks. □ 8 Fiskistofa skal daglega birta aðgengilegar upplýsingar um flutning aflamarks, þar á meðal um magn eftir tegundum, auk upplýsinga um verð, þar sem við á. □ 9 Tilkynning um flutning aflamarks skal hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 15 dögum eftir að veiðitímabili lýkur. 1) Gjaldskrá Fiskistofu nr. 5/2020 10. gr. □ 1 Flutning á aflahlutdeild milli fiskiskipa skal tilkynna Fiskistofu skriflega fyrirfram. Beiðni um flutning skal sett fram á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út. Krókaaflahlutdeild verður aðeins flutt til báts sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðarmörk sem kveðið er á um í 8. gr. Eigandi þess skips, sem aflahlutdeildin er flutt frá, skal undirrita beiðni um flutning og skal undirritun hans staðfest af tveimur vottum. Við flutning á aflahlutdeild skal leggja fram veðbókar- vottorð þess skips sem flutt er frá auk skriflegs samþykkis eftirgreindra aðila: a. þeirra er þinglýst samningsveð áttu í skipinu 1. janúar 1991, b. þeirra, sem eiga þinglýsta kvöð á skipinu þar sem kveðið er á um að framsal aflahlutdeildar sé óheimilt án samþykkis kvaðarhafa, c. þinglýst samþykki þeirra, sem eiga þinglýst samningsveð í skipinu frá og með 1. janúar 1998.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==