Stjórn fiskveiða 2020-2021
Reglugerð nr. 726/2020, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2020/2021 63 □ 2 Flutningur aflahlutdeildar öðlast ekki gildi fyrr en staðfesting Fiskistofu liggur fyrir. Aldrei er heimilt að flytja aflahlutdeild milli skipa, leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. □ 3 Umsóknir um flutning aflahlutdeildar milli fiskiskipa ásamt fullnægjandi fylgigögnum skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en einum mánuði fyrir lok fiskveiðiárs. Berist umsókn innan mán- aðar, hefur flutningur aflahlutdeildar ekki áhrif á úthlutun aflamarks komandi fiskveiðiárs. □ 4 Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, ein- staklinga eða lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild en tilgreint er í 13. gr. laga um stjórn fiskveiða. Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar og krókaaflahlutdeildar milli skipa skal eigandi þess skips sem flutt er frá greiða samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu. 1) 1) Gjaldskrá Fiskistofu nr. 5/2020 VIII. KAFLI Veiðiskylda. 11. gr. □ 1 Veiði fiskiskip minna en 50% á fiskveiðiári af úthlutuðu aflamarki sínu og aflamarki sem flutt hefur verið frá fyrra fiskveiðiári, í þorskígildum talið, fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips skv. þorskígildisstuðlum. Við- miðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á. Hið sama á við þegar skipi er haldið til veiða utan lögsögu á tegundum sem samið hefur verið um veiðistjórn á og ekki teljast til deilistofna. □ 2 Tefjist skip frá veiðum í a.m.k. fjóra mánuði vegna tjóns, meiri háttar bilana eða endurbóta hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar samkvæmt þessari grein. X. KAFLI Ýmis ákvæði. 12. gr. □ 1 Skipstjóra er skylt að halda fiski um borð í veiðiskipum aðgreindum eftir tegundum. Verði slíku ekki við komið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Ennfremur er skylt að láta vigta afla samkvæmt ákvæðum III. kafla laga um umgengni um nytjastofna sjávar og reglugerðar um vigtun og skráningu sjávarafla. □ 2 Afla af skrápflúru og sandkola sem fenginn er á því veiðisvæði sem tilgreint er í 6. mgr. 2. gr. skal haldið aðskildum frá öðrum afla af þessum tegundum og hann veginn og skráður sérstaklega. □ 3 Ef haldið er til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands skal, þegar haldið er úr höfn, tilkynna Fiskistofu hvar fyrirhugað sé að stunda veiðar. Þá skal tilkynna hvenær veiðar hefjast og hvenær þeim lýkur, nema annað sé ákveðið í sérstökum reglugerðum um viðkomandi veiðar. Í tilkynning–unni komi fram, eftir því sem við á, áætlaður afli um borð, sundurliðaður eftir tegundum. □ 4 Í einni og sömu veiðiferð er óheimilt að stunda veiðar bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Þetta gildir þó ekki, haldi skip til veiða utan lögsögunnar á úthafskarfa, síld, loðnu, kol- munna, túnfiski eða makríl, enda sé Fiskistofu tilkynnt um slíkt í samræmi við reglur þar að lútandi. □ 5 Heimilt er þó með samþykki Fiskistofu að víkja frá banni, skv. 4. mgr., enda hafi afli og aflasamsetning um borð í fiskiskipi verið staðfest með fullnægjandi hætti að mati Fiskistofu, áður en skip flytur sig milli veiðisvæða utan og innan lögsögunnar. □ 6 Þorsk-, ýsu- og ufsaveiðar með hringnót eru bannaðar.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==