Stjórn fiskveiða 2020-2021
Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 64 13. gr. □ 1 Útgerðum skipa sem fengið hafa leyfi Fiskistofu til að vinna afla um borð er skylt að lokinni veiðiferð að skila sérstakri skýrslu um afla til Fiskistofu á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til. □ 2 Þá er skipstjórum fiskiskipa skylt að halda sérstakar afladagbækur, sbr. reglugerð 1) um afladagbækur. □ 3 Kaupendum afla er skylt að skila til Fiskistofu skýrslum um móttekinn afla í því formi, sem Fiskistofa ákveður, sbr. reglugerð 2) um skýrsluskil vegna viðskipta með sjávarafla. 1) Rg. 298/2020. 2) Rg. 994/2013. 14. gr. □ 1 Heimilt er að nýta báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, til veiða í frístundum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, enda séu engin veiðarfæri um borð önnur en handfæri án sjálfvirknibúnaðar og/eða sjóstangir. Óheimilt er að selja aflann eða fénýta á annan hátt. □ 2 Skipstjórar báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni og fara til veiða, skv. 1. mgr., skulu tilkynna Fiskistofu um það áður en veiðiferð hefst. 15. gr. □ 1 Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála. □ 2 Um áminningar og sviptingu veiðileyfa vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. □ 3 Um gjald vegna ólögmæts sjávarafla skal beita ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. 16. gr. □ 1 Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Ákvæði 5. gr. koma til framkvæmda við gildistöku þessarar reglugerðar, en ákvæði annarra greina 1. september 2019. Ákvæði til bráðabirgða. I. □ 1 5.000 tonn af íslenskri sumargotssíld skulu flutt af fiskveiðiárinu 2020/2021 til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar á fiskveiðiárinu 2019/2020. [II. □ 1 Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki hverrar botnfisktegundar og humars frá fiskveiði- árinu 2019/2020 yfir á fiskveiðiárið 2020/2021. Ákvæði þetta öðlast þegar gildi.] 1) 1) Rg. 810/2020 Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. júlí 2020.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==