Stjórn fiskveiða 2020-2021
Reglugerð nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla 65 Reg lugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. 1. gr. □ 1 Reglugerð þessi gildir um vigtun og skráningu alls afla sem landað er hér á landi án tillits til þess hvar hann er veiddur. □ 2 Öllum afla, sem íslensk skip veiða úr stofnum sem að hluta eða öllu leyti halda sig í efnahags- lögsögu Íslands, skal landað innanlands og hann veginn í íslenskri höfn. 2. gr. □ 1 Skipstjóri fiskiskips ber ábyrgð á að afli skipsins sé veginn samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar. Skipstjóra er skylt að halda afla um borð í skipi sínu aðgreindum eftir tegundum. Verði því ekki viðkomið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Meðafli við veiðar á uppsjávarfiski skal ákvarðaður af vigtunarleyfishafa sem er móttakandi afla. □ 2 Afli skal skráður til aflamarks á veiðiskip. Óheimilt er að flytja afla milli skipa, nema kveðið sé á um annað í reglugerð. 3. gr. □ 1 Ökumaður flutningstækis sem flytur afla skal fá afrit af vigtarnótu og afhenda viðtakanda afla. Ökumanni er óheimilt að flytja afla fyrr en hann hefur fengið vigtarnótu afhenta. 4. gr. □ 1 Um almennt og sérstakt hæfi löggiltra vigtarmanna skal fara að 2. mgr. 27. gr. laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, sbr. reglur nr. 650/2007, um almennt og sérstakt hæfi löggiltra vigtarmanna. 5. gr. □ 1 Afli skal veginn í því ástandi sem hann er í við löndun. Þó er heimilt að vigta þorsk, ýsu og ufsa eftir slægingu í landi enda sé farið að ákvæðum IV. kafla reglugerðar þessarar. □ 2 Fiskistofu er heimilt að framkvæma sérstaka athugun á íshlutfalli afla vegna eftirlits og getur stofnunin ákveðið að sú mæling verði lögð til grundvallar við aflaskráningu. 6. gr. □ 1 Fiskistofu er heimilt að veita einkaaðilum leyfi til vigtunar sjávarafla í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar. Skilyrði leyfisveitingar er að eftirlitsmenn Fiskistofu hafi óhindrað aðgengi að aðstöðu þar sem vigtun afla fer fram og skal stofnuninni afhentur lyklakóði sem tryggir aðgengi. □ 2 Aðilum sem fengið hafa leyfi til vigtunar sjávarafla er skylt að vigta afla sem móttekinn er, í samræmi við útgefið leyfi. I. KAFLI Vigtun á hafnarvog. 7. gr. □ 1 Allur afli skal veginn á hafnarvog í löndunarhöfn þegar við löndun aflans og skal vigtun afla vera lokið innan tveggja klukkustunda frá því að löndun lauk. Skal við vigtunina nota löggilta vog í eigu viðkomandi hafnar. Vigtun skal framkvæmd af starfsmanni hafnar sem hlotið hefur til þess löggildingu. □ 2 Sé hafnarvog ekki í viðkomandi verstöð eða ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi getur Fiskistofa leyft vigtun með öðrum hætti, séu skilyrði sem sett eru í III. kafla eða VI. kafla uppfyllt.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==