Stjórn fiskveiða 2020-2021

Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 66 8. gr. □ 1 Allur afli skal veginn í ílátum með ís. Hver tegund skal vegin sérstaklega. Löggiltur vigtar- maður á hafnarvog skal skrá á vigtarnótu tegund, fjölda og áætlaða þyngd íláta og draga frá vegnum afla. Vigtarmanni er einnig heimilt að draga allt að 3% frá vegnum afla vegna áætlaðs íss í afla eftir að hafa gengið úr skugga um að aflinn sé ísaður. □ 2 Vigtarmanni er heimilt að draga 0,6% frá óunnum ofurkældum (íslausum) afla sem veginn er á hafnarvog vegna vökvafrádrags (e. drips) 1) □ 3 Heimilt er að draga 12% íshlutfall af óunnum afla sem veginn er á hafnarvog frágenginni til útflutnings, beint í flutningsfar. Kom í ljós við eftirlit Fiskistofu verulegt frávik frá 12% íshlutfalli í afla skips skal vigta afla skipsins skv. 1. mgr. eða 1. mgr. 11. gr. í næstu 8 vikur. Ef ítrekuð veruleg frávik eru frá 12% íshlutfalli í afla skips skal vigta afla skipsins skv. 1. mgr. 11. gr. næstu 16 vikur. 1) □ 4 Frádráttur vegna íss skal tilgreindur á vigtarnótu. 1) Rg. 325/2020, 1. gr. 9. gr. □ 1 Ökumaður flutningstækis skal láta vigta hverja tegund sérstaklega. Skal hann kynna sér afla- samsetningu farms sem hann flytur, og gefa vigtarmanni réttar upplýsingar þar um og gæta þess að upplýsingar á vigtarnótu gefi rétta mynd af farminum. Jafnframt skal ökumaður gefa vigtarmanni upplýsingar um viðtakanda afla. 10. gr. □ 1 Löggiltur vigtarmaður sem jafnframt er starfsmaður hafnar og vigtar aflann, gefur út og undirritar vigtarnótu þar sem eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram: 1. Nafn skips og skrásetningarnúmer ásamt umdæmisnúmeri. 2. Löndunarhöfn og löndunardagur. 3. Nafn seljanda, kaupanda og viðtakanda afla eða eftir atvikum fiskmarkaðar. 4. Vegið aflamagn, sundurliðað eftir tegundum. 5. Undirmálsafli. 6. Fjöldi íláta, gerð og þungi (t.d. kör, kassar, tunnur). 7. Veiðarfæri. 8. Sé um að ræða bretti eða palla sem ílátin eru flutt á skal gera grein fyrir fjölda þeirra. 9. Skrásetningarnúmer flutningstækis og eiginþyngd samkvæmt skráningu í ökutækjaskrá. 10. Tilgreina skal hvort afli fari til endurvigtunar. 11. Tilgreina skal hvort óslægður afli, sbr. 5. gr., verði veginn eftir slægingu eða umreiknist í slægðan afla samkvæmt slægingarstuðli sem útgefinn er af ráðuneytinu. □ 2 Upplýsingar samkvæmt vigtarnótu skal hafnarvigtarmaður ávallt skrá í aflaskráningarkerfi Fiskistofu án ástæðulauss dráttar. II. KAFLI Endurvigtun. 11. gr. □ 1 Heimilt er Fiskistofu að veita leyfi til að ísaður afli sem vigtaður hefur verið á hafnarvog sé endurvigtaður. Leyfi til endurvigtunar er veitt til heilvigtunar og úrtaksvigtunar afla svo sem nánar er kveðið á um í reglugerð þessari. □ 2 Leyfi til endurvigtunar skal bundið við nafn og kennitölu umsækjanda og veitir vigtunarleyfishafa rétt til endurvigtunar sjávarafla í því húsnæði sem tilgreint er í leyfisbréfi og með þeim skilyrðum sem þar er kveðið á um. Leyfið gildir til allt að þriggja ára.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==