Stjórn fiskveiða 2020-2021
Reglugerð nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla 67 □ 3 Taki nýr rekstraraðili við rekstri fyrirtækis sem hefur endurvigtunarleyfi skal sá aðili þegar í stað sækja um leyfi til endurvigtunar afla. Á meðan umsókn er til meðferðar hjá stjórnvöldum gildir fyrra leyfi. 12. gr. □ 1 Aðili sem óskar eftir leyfi til að vigta afla skal senda skriflega umsókn til Fiskistofu og skal Fiskistofa taka ákvörðun um leyfisveitingu eftir að hafa leitað álits viðkomandi hafnaryfirvalda. □ 2 Í umsókninni skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram: 1. Nafn og kennitala umsækjanda. 2. Starfsemi umsækjanda. 3. Staðsetning vinnsluhúss sem vigtun fer fram í. 4. Nöfn þeirra löggiltu vigtarmanna sem munu vigta aflann og upplýsingar um hvenær þeir hlutu löggildingu. Þá komi fram hjá hverjum hinn löggilti vigtarmaður starfi. 5. Rekstrarform fyrirtækisins og nöfn aðaleigenda. 6. Vinnsluleyfisnúmer. 7. Gerð leyfis sem óskað er eftir þar sem tilgreind er framkvæmd vigtunar á hverri fisktegund og eftir atvikum aðferð við úrtaksvigtun. □ 3 Með umsókn skal fylgja nákvæm greinargerð um hvernig staðið verði að vigtun og skráningu afla, hvers konar vogir verði notaðar og hvenær þær voru löggiltar. Þar skal gerð grein fyrir því hvernig niðurstöður vigtunar verða notaðar í viðskiptum með sjávarafla og hvernig rekjanleiki þessara upplýsinga verður tryggður. □ 4 Fiskistofa skal meta hvort búnaður umsækjanda sé með þeim hætti að unnt verði að fara í hvívetna að reglum sem gilda um vigtun sjávarafla. Uppfylli umsækjandi kröfur sem gerðar eru til vigtunarleyfishafa skal Fiskistofa gefa út leyfi til endurvigtunar afla. Fiskistofa skal tilkynna við- komandi hafnaryfirvöldum um veitingu leyfa til endurvigtunar afla. 13. gr. □ 1 Búnaður til heilvigtunar skal vera með þeim hætti að til staðar sé sjálfvirk vog sem vigtar allan afla með samfelldum hætti. 14. gr. □ 1 Búnaður til úrtaksvigtunar skal vera með þeim hætti að vigtarmanni sé kleift að annast vigtun þess afla sem unninn er daglega hjá viðkomandi vigtunarleyfishafa. Fiskistofa skal meta hvort búnaður og aðrar aðstæður hjá umsækjanda séu fullnægjandi og skal í því sambandi m.a. líta til ísskiljubúnaðar, fjölda starfsmanna sem annast vigtun og hvort nægilegt rými sé til vigtunar. 15. gr. □ 1 Við heilvigtun skal allur afli veginn. Heimilt er að heilvigta fisk eftir hausun og skal vigta búka og hausa sérstaklega. □ 2 Við úrtaksvigtun skal, í kjölfar brúttóvigtunar alls afla á hafnarvog, úrtak valið af handahófi þannig að það gefi sem réttasta mynd af aflanum og vigtun framkvæmd á þann veg að: Afli í tilteknum fjölda íláta er vigtaður í samræmi við 3. gr. auglýsingar nr. 213/2010 um reglur um lágmarksúrtak og framkvæmd vigtunar við úrtaksvigtun, eða þegar hvert kar hefur verið brúttóvigtað skal afli í tilteknum fjölda íláta vigtaður í samræmi við 4. gr. auglýsingar nr. 213/2010 um reglur um lágmarksúrtak og framkvæmd vigtunar við úrtaksvigtun. □ 3 Vigtunarleyfishafi skal ávallt beita sömu aðferð við vigtun úrtaks. □ 4 Vigtun afla skal framkvæmd af vigtarmanni sem hlotið hefur löggildingu til vigtunar og notuð skal löggilt vog.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==