Stjórn fiskveiða 2020-2021
Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 68 □ 5 Löggiltur vigtarmaður sem jafnframt er starfsmaður löndunarhafnar getur enn fremur annast endurvigtun afla, enda sé löggilt vog notuð. Löggiltur vigtarmaður sjálfstæðs vigtunarleyfishafa, sbr. VI. kafla, getur einnig annast endurvigtun afla hafi viðkomandi vigtunarleyfishafi annast vigtun aflans við löndun enda fari vigtun fram í húsnæði hans á löggiltri vog eða hjá aðila sem hefur leyfi til endurvigtunar. 16. gr. □ 1 Þegar afli er endurvigtaður skal það gert svo fljótt sem verða má og án ástæðulauss dráttar og þegar afla er landað óslægðum. Vigtarnóta skal send löndunarhöfn strax að vigtun lokinni. Vigtarnóta skal ávallt send til löndunarhafnar innan tveggja virkra daga frá löndun aflans þegar afli er úrtaksvigtaður og innan fimm virkra daga þegar afli er heilvigtaður. Vigtarnóta skal þó ávallt send til löndunarhafnar innan tveggja daga þegar afli er veginn eftir slægingu í landi. □ 2 Afla sem veginn hefur verið hjá endurvigtunarleyfishafa og fluttur er til kaupanda skal fylgja vigtarnóta þar sem fram koma þau atriði sem tilgreind eru í 17. gr. Vigtarnóta skal þó ávallt send til löndunarhafnar innan tveggja daga þegar afla er landað óslægðum. 17. gr. □ 1 Löggiltur vigtarmaður sem annast endurvigtun afla skal fylla út og undirrita vigtarnótu þar sem, auk þess sem segir í 10. gr., skal tilgreina eftirfarandi upplýsingar fyrir hverja tegund: 1. Þegar um er að ræða heilvigtun: a. Heildarþunga fisks. b. Reiknað hlutfall íss í afla. (Brúttóafli, þ.e. afli og ís samkvæmt vigtun á hafnarvog, mínus nettóafli, þ.e. afli án íss við endurvigtun, margfaldað með 100, deilt með brúttóafla.) c. Niðurstöðu vigtunar á óslægðum afla eftir því sem við á, sbr. 25. gr. 2. Þegar um er að ræða úrtaksvigtun A: a. Fjöldi og gerð íláta sem valin eru í úrtak. b. Fyrir hvert ílát sem valið er í úrtak skal tilgreina: i. þunga fisks í hverju íláti, ii. þunga íss í hverju íláti, iii. þunga íláts. 3. Þegar um er að ræða úrtaksvigtun B: a. Niðurstaða brúttóvigtunar hvers kars. b. Fjöldi og gerð íláta sem valin eru í úrtak. c. Fyrir hvert ílát sem valið er í úrtak skal tilgreina: i. þunga fisks í hverju íláti, ii. þunga íss í hverju íláti, iii. þunga íláts. d. Reiknað hlutfall íss í afla. (Brúttóafli, þ.e. afli og ís samkvæmt vigtun á hafnarvog, mínus nettóafli, þ.e. afli án íss við endurvigtun, margfaldað með 100, deilt með brúttóafla.) 18. gr. □ 1 Endurvigtunarleyfishafa, sem hefur heimild til heilvigtunar, er heimilt að fara með afla sem ætlaður er til útflutnings samkvæmt reglum um úrtaksvigtun og skal sá hluti aflans brúttóvigtaður á hafnarvog.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==