Stjórn fiskveiða 2020-2021

Reglugerð nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla 69 III. KAFLI Heimavigtun. 19. gr. □ 1 Fiskistofu er heimilt að veita undanþágu frá vigtun á hafnarvog að uppfylltum skilyrðum kafla þessa enda verði til þess notuð sjálfvirk vog sem vigtar afla með samfelldum hætti. Auk þessa skal vigta hvern fisk sérstaklega þegar um er að ræða bolfisk. Heimilt er að vigta fisk eftir hausun og skal þá vigta hvern búk sérstaklega auk þess sem vigta ber hausa. Þá skal vigtunarbúnaður skrá og geyma upplýsingar um vigtaðan afla síðastliðna tólf mánuði. □ 2 Leyfi til heimavigtunar skal bundið við nafn og kennitölu umsækjanda og veitir leyfið rétt til vigtunar sjávarafla í því húsnæði sem tilgreint er í leyfisbréfi og með þeim skilyrðum sem þar er kveðið er á um. Í leyfisbréfi skal koma fram hvort leyfið er til heimavigtunar á uppsjávarfiski eða botnfiski. Leyfið gildir til allt að tveggja ára. □ 3 Taki nýr rekstraraðili við rekstri fyrirtækis sem hefur heimavigtunarleyfi skal sá aðili þegar í stað sækja um nýtt leyfi til heimavigtunar afla. Á meðan umsókn er til meðferðar hjá stjórnvöldum gildir fyrra leyfi. □ 4 Leyfi til heimavigtunar veitir leyfishafa eingöngu heimild til vigtunar á afla sem fyrirhugað er að vinna á vigtunarstað eða seldur er á uppboði hjá fiskmarkaði. Fiskistofa skal tilkynna viðkomandi hafnaryfirvöldum um veitingu leyfa til heimavigtunar afla. 20. gr. □ 1 Heimavigtunarleyfi skal aðeins veitt að fenginni jákvæðri umsögn hafnaryfirvalda á viðkomandi löndunarstað. Heimavigtunarleyfi nær aðeins til vigtunar á afla sem landað er á tilteknum löndunarstað, sem tilgreindur er í leyfisbréfi sem Fiskistofa gefur út. Fiskistofa getur bundið heimavigtunarleyfi skilyrðum, s.s. varðandi tegundir og aðferð við vigtun. Heimavigtunarleyfi skal því aðeins veitt að veruleg vandkvæði séu á því að vega aflann á hafnarvog, eftirlit hafnar sé nægilegt og innra eftirlit fyrirtækisins traust auk þess sem vigtunarbúnaður sé löggiltur og vigtun framkvæmd af löggiltum vigtarmanni. Þá skal Fiskistofa meta hvort búnaður umsækjanda sé með þeim hætti að unnt verði að fara í hvívetna að reglum um vigtun sjávarafla. Aðili sem hefur heimavigtunarleyfi hefur jafnframt leyfi til endurvigtunar, sbr. II. kafla. □ 2 Í umsókn um heimavigtunarleyfi skal tilgreina þau atriði sem fram koma í 1.-7. tl. 12. gr. ásamt rökstuðningi fyrir umsókn um heimavigtunarleyfi. □ 3 Með umsókn skal fylgja nákvæm greinargerð um hvernig staðið verði að vigtun og skráningu afla, hvers konar vogir verði notaðar og hvenær þær voru löggiltar. Þar skal gerð grein fyrir hvernig niðurstöður vigtunar eru notaðar í viðskiptum með sjávarafla og hvernig rekjanleiki upplýsinga er tryggður. □ 4 Leyfi til heimavigtunar er veitt til heilvigtunar og úrtaksvigtunar afla og skal fara fram í samræmi við ákvæði II. kafla reglugerðar þessarar. 21. gr. □ 1 Heimavigtunarleyfi má veita vegna löndunar á uppsjávarfiski sem landað er með dælingu afla úr veiðiskipi beint til fiskvinnslu eða í hráefnisgeymslu. □ 2 Fiskistofa getur í samráði við viðkomandi löndunarhöfn bundið heimavigtunarleyfi því skilyrði að leyfishafi tryggi að tilkynningar um löndun og áætlaðan afla berist til löndunarhafnar áður en löndun hefst. 22. gr. □ 1 Leyfi til heimavigtunar á botnfiski er bundið þeim skilyrðum að leyfishafi tilkynni fyrirfram til hafnar um fyrirhugaða löndun og áætlaðan afla. Þessa er þó ekki þörf hafi skipstjóri þegar sent upplýsingar til löndunarhafnar um áætlað aflamagn flokkað eftir tegundum.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==