Stjórn fiskveiða 2020-2021

Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 70 □ 2 Heimavigtunarleyfishafa er heimilt að fara með afla sem ætlaður er til útflutnings samkvæmt reglum um úrtaksvigtun og skal sá hluti aflans brúttóvigtaður á hafnarvog. 23. gr. □ 1 Við heimavigtun afla skal við löndun botnfisks brúttóvigta allan afla og senda vigtarnótu, sbr. 10. gr. til löndunarhafnar án tafar. Þó er heimilt að senda einungis endanlega niðurstöðu vigtunar þegar vigtun farms er lokið innan 24 klukkustunda frá löndun og vigtarnóta er send til löndunarhafnar þegar í stað. □ 2 Heimavigtun afla skal framkvæmd af vigtarmanni sem hlotið hefur löggildingu til vigtunar og notuð skal löggilt vog. □ 3 Vigtarnóta skal send til viðkomandi löndunarhafnar undirrituð af þeim löggilta vigtarmanni sem sá um vigtunina þegar að vigtun lokinni. Vigtarnóta skal ávallt send til löndunarhafnar innan tveggja virkra daga frá löndun aflans þegar afli er úrtaksvigtaður og innan fimm virkra daga þegar afli er heilvigtaður. Vigtarnóta skal þó ávallt send innan tveggja daga þegar afla er landað óslægðum. □ 4 Á heimavigtunarnótu skal tilgreina sömu atriði og fram koma í 17. gr. □ 5 Afla sem veginn hefur verið hjá heimavigtunarleyfishafa og fluttur er til kaupanda skal fylgja vigtarnóta þar sem fram koma þau atriði sem tilgreind eru í 17. gr. 24. gr. □ 1 Senda skal Fiskistofu upplýsingar um magn afurða ásamt upplýsingum um nýtingarhlutfall viðkomandi afurða. Upplýsingarnar skal senda á því formi sem Fiskistofa ákveður eigi síðar en 15. hvers mánaðar, vegna afla sem unninn var undanfarinn mánuð. IV. KAFLI Vigtun eftir slægingu í landi. 25. gr. □ 1 Fiskistofu er heimilt að veita vigtunarleyfishafa leyfi til að vigta þorsk, ýsu eða ufsa eftir slægingu í landi enda verði til þess notuð sjálfvirk vog sem vigtar allan afla með samfelldum hætti fyrir og eftir slægingu. Auk þess skal vigta hvern fisk sérstaklega. Vigtunarbúnaður skal skrá og geyma upplýsingar um vigtaðan afla síðastliðna tólf mánuði. □ 2 Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtun aflans skal skrá á vigtarnótu, auk upplýsinga sem fram koma í 17. gr., upplýsingar um niðurstöðu vigtunar á óslægðum afla. □ 3 Vigtunarleyfishafa sem leyfi hefur til slægingar og vigtunar afla ber ávallt að slægja afla fyrir vigtun hans til skráningar. Það á þó ekki við um fiskmarkaði. V. KAFLI Vigtun á fiskmarkaði. 26. gr. □ 1 Fiskistofu er heimilt að veita fiskmörkuðum leyfi til endurvigtunar afla, sbr. 11. gr. eða til heimavigtunar afla, sbr. 19. gr. og til vigtunar eftir slægingu í landi, sbr. 1. mgr. 25. gr. □ 2 Um umsókn um vigtunarleyfi til fiskmarkaða og veitingu leyfa vísast til ákvæða 12. gr., sbr. 20. gr. og 1. mgr. 25. gr. eftir atvikum. 27. gr. □ 1 Um vigtun afla á fiskmarkaði fer skv. ákvæðum II. og III. kafla reglugerðar þessarar um endurvigtun og heimavigtun eftir því sem við á. Vigtarnóta skal ávallt send til löndunarhafnar þegar að vigtun lokinni þó eigi síðar en innan tveggja virkra daga frá löndun aflans.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==