Stjórn fiskveiða 2020-2021

Reglugerð nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla 71 □ 2 Fiskmarkaði sem heimild hefur til vigtunar afla eftir slægingu í landi ber að vigta afla í sam- ræmi við upplýsingar á vigtarnótu, sbr. 10. gr., eða tilkynningu skipstjóra þegar um er að ræða heimavigtunarleyfishafa. □ 3 Afla sem veginn hefur verið á fiskmarkaði og fluttur er til kaupanda skal fylgja vigtarnóta þar sem fram koma þau atriði sem tilgreind eru í 17. gr. VI. KAFLI Vigtun sjálfstæðs aðila. 28. gr. □ 1 Fiskistofa getur veitt sjálfstæðum aðilum heimild til að annast vigtun á afla við löndun enda sé hún undir eftirliti og á ábyrgð viðkomandi hafnaryfirvalda. □ 2 Leyfið skal bundið við nafn og kennitölu umsækjanda og veitir það vigtunarleyfishafa rétt í samræmi við ákvæði leyfisbréfs til vigtunar sjávarafla við löndun í tiltekinni höfn. Í umsókn skal tilgreina þau atriði sem koma fram í 1.-6. tl. 12. gr. og með umsókn skal fylgja yfirlýsing hafnar- yfirvalda um heimild umsækjanda til vigtunar sjávarafla undir eftirliti og á ábyrgð hafnarinnar. Leyfið gildir til þriggja ára. □ 3 Skilyrði fyrir leyfisveitingu er að innra eftirlit vigtunaraðila sé traust, vigtunarbúnaður löggiltur og vigtun framkvæmd af löggiltum vigtarmanni. 29. gr. □ 1 Heimild til vigtunar afla í umboði hafnar skal aðeins veitt þeim sem ekki eiga beina eignaraðild að útgerðarfyrirtæki eða fiskvinnslu, né annast eða hafa milligöngu um sölu á afla og ekki hafa slíkra hagsmuna að gæta að draga megi óhlutdrægni þeirra í efa með réttu. Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtun fyrir slíkan aðila skal uppfylla skilyrði um hæfi, sbr. 4. gr. 30. gr. □ 1 Vigtun afla sem framkvæmd er af sjálfstæðum aðila á grundvelli sérstaks vigtunarleyfis skal fara fram í samræmi við ákvæði I. kafla. Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtun afla skal fylla út og undirrita vigtarnótu, sbr. 10. gr. og senda til viðkomandi hafnar án ástæðulauss dráttar. VII. KAFLI Vigtun einstakra tegunda. Vigtun á grásleppu. 31. gr. □ 1 Við umreikning landaðra grásleppuhrogna í heila grásleppu til skráningar í afla- skráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við margföldunarstuðulinn 3,4. □ 2 Grásleppa skal vegin á hafnarvog samkvæmt ákvæðum 7. gr. □ 3 Við vigtun grásleppuhrogna skal brúttóvigta aflann og skrá fjölda tunna eða kara. Við ákvörðun magns hrogna til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við reiknistuðulinn 0,80. Vigtun á humri. 32. gr. □ 1 Humar skal veginn á hafnarvog skv. ákvæðum 7. gr. □ 2 Um vigtun á humri sem er vigtaður samkvæmt endurvigtunarleyfi gilda eftirfarandi ákvæði: 1. Humri, sem kemur slitinn í land, skal hellt í sérbúna ísskilju, ísinn skal fleyttur ofan af og vatn látið síga af humarhölum áður en afli er veginn. 2. Humar sem slitinn er í landi skal veginn að lokinni afísun áður en honum er pakkað. 3. Heimilt er að vigta heilan humar í umbúðum þegar að lokinni pökkun. Einungis skal draga þyngd umbúða frá heildarþyngd.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==