Stjórn fiskveiða 2020-2021

Reglugerð nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla 73 36. gr. □ 1 Forsoðin rækja sem fryst er í öskjur skal ávallt vegin skv. ákvæðum 7. gr. Vigtarmaður á hafnarvog skal draga þyngd umbúða frá vegnu aflamagni. □ 2 Hrárækja sem fryst er í öskjur skal ávallt vegin skv. ákvæðum 7. gr. Vigtarmaður á hafnarvog skal draga þyngd umbúða frá vegnu aflamagni. Frá þannig vegnu aflamagni frystrar hrárækju skal síðan draga 10% vegna vatns í afla. □ 3 Á vigtarnótu skal tilgreina þau atriði sem fram koma í 43. gr. eftir því sem við á. 37. gr. □ 1 Rækju sem veidd er vestan 26°00'V og norðan 65°30'N (á Dohrnbanka) skal haldið aðgreindri frá annarri rækju eða auðkennd og skal hún vegin sérstaklega. Sérstaklega skal getið um þann afla í tilkynningu til Fiskistofu skv. 40. gr. Vigtun á uppsjávarfiski. 38. gr. □ 1 Vigtun uppsjávarfisks sem fer í hráefnisgeymslu fiskmjölsverksmiðju skal fara fram í samræmi við ákvæði 1. mgr. 19. gr. Vigtarnóta skal ávallt send til löndunarhafnar þegar að vigtun lokinni þó eigi síðar en innan tveggja virkra daga frá löndun aflans. □ 2 Vigtun uppsjávarfisks sem fer í vinnslu (frystingu eða söltun) skal fara fram í samræmi við ákvæði 1. mgr. 19. gr. Fiskistofu er heimilt að veita leyfi til vigtunar á pökkuðum afurðum. Vigtun á pökkuðum afurðum skal fara fram á löggiltri vog með eftirfarandi hætti fyrir hverja afurð: 1. Raunþyngd eininga skal fundin með vigtun á úrtaki. Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtunina skal velja af handahófi a.m.k. 5 einingar á klst. þegar vinnsla fer fram. Á hverjum sólarhring skal vigta a.m.k. 30 einingar en þó er ekki gerð krafa um vigtun á fleiri en 70 einingum af hverri vinnslulínu. 2. Meðaltal vigtaðrar raunþyngdar eininga, að frádregnum umbúðaþunga, skal fundið og margfaldað með fjölda framleiddra eininga og skal niðurstaðan skráð á vigtarnótu. 3. [Allan afskurð, hausa, slóg og fráflokk skal vigta og niðurstaðan skráð á vigtarnótu.] 1) 1) Rg. 436/2019, 1. gr. 39. gr. □ 1 Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtun á uppsjávarfiski til vinnslu skal ganga frá og gefa út vigtarnótu þar sem eftirtalin atriði koma fram: 1. Nafn skips og skrásetningarnúmer ásamt umdæmisnúmeri. 2. Löndunarhöfn og löndunardagur. 3. Viðtakandi afla. 4. Fyrir hverja afurð komi eftirtaldar upplýsingar fram: a. Fjöldi framleiddra eininga. b. Fjöldi eininga í úrtaki. c. Heildarþungi úrtaks. d. Nettóþungi úrtaks (heildarþungi að frádregnum þunga bretta, umbúða og íss). e. Nettóþungi einingar (nettóþungi úrtaks deilt með fjölda eininga í úrtaki). f. Nettóþungi afurðar (nettóþungi einingar margfaldaður með heildarfjölda eininga). 5. [Nettóþungi afskurðar, hausa, slógs og fráflokks.] 1) 1) Rg. 436/2019, 2. gr.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==