Stjórn fiskveiða 2020-2021

Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 74 [[39. gr. A] 1) Vigtun á sjávargróðri. □ 1 Við vigtun á þörungum (þangi og þara) í atvinnuskyni skal afli veginn (blautvigt) á hafnarvog, nema gefið sé heimavigtunarleyfi. Hagnýta skal aðra hvora eftirgreindra aðferða: A) Pokavigtun . Vigtun á pokum við löndun. Færa skal skráningu á einstök skip þ.m.t. sláttupramma. B) Safnvigtun . Vigtun í lausu máli frá skipi við löndun. Í þessum tilvikum skal áætla aflamagn hvers skips þ.m.t. pramma við vigtunina. □ 2 Að auki skal skrá uppruna þangsins eftir heitum fasteigna (eða landnúmeri). □ 3 Óheimilt er að framkvæma endurvigtun á þörungum. Heimilt er að færa afla milli skipa við söfnun á sjó.] 2) 1) Rg. 91/2018. 2) Rg. 617/2018. VIII. KAFLI Skip er vinna afla um borð. 40. gr. □ 1 Skipstjórar skipa er vinna afla um borð frekar en að blóðga, slægja og ísa, skulu strax þegar veiðum er hætt tilkynna Fiskistofu í símskeyti, eða með öðrum hætti sem Fiskistofa viðurkennir, um áætlað magn hverrar afurðar eins nákvæmlega og unnt er ásamt fyrirhuguðum löndunardegi og löndunarstað. Er þeim skylt að landa afurðum sínum á Íslandi. □ 2 Þá skulu skipstjórar í lok hverrar veiðiferðar og áður en löndun hefst tilkynna viðkomandi löndunarhöfn skriflega og á því formi sem Fiskistofa ákveður, um áætlaðan fjölda eininga (t.d. kassa og/eða pakkninga) sem landað er af hverri afurð og þunga umbúða hverrar einingar. □ 3 Í tilkynningunni skal einnig geta þess hvort einstakar afurðir, aðrar en flök, eru íshúðaðar sérstaklega. □ 4 Vigtarmaður skal því aðeins draga frá niðurstöðu vigtunar afurða vegna þyngdar umbúða og sérstakrar íshúðunar, sbr. 3. mgr. 41. gr., hafi tilkynning skipstjóra borist löndunarhöfn. Tilkynningar þessar skulu varðveittar hjá löndunarhöfn í samræmi við ákvæði 53. gr. Vigtun afurða skv. þessum kafla skal ætíð framkvæmd af starfsmönnum hafnar, sbr. þó 28. gr. □ 5 Afurðir skulu vigtaðar þegar við löndun og skal vigtarnótu skilað til löndunarhafnar þegar að vigtun lokinni. □ 6 Einungis er heimilt að landa hluta af tiltekinni afurð vinnsluskips ef allri framleiðslu tiltekinna daga er landað ásamt tilheyrandi nýtingarsýnum. 41. gr. □ 1 Löggiltur vigtarmaður skal af handahófi velja það úrtak sem vigta skal þannig að það gefi sem réttasta mynd af afurðinni. Úrtakið skal miðað við áætlun skipstjóra hvað varðar fjölda eininga af viðkomandi afurð og skal vera í samræmi við auglýsingu nr. 213/2010 um reglur um lágmarksúrtak og framkvæmd vigtunar við úrtaksvigtun. Með vigtun úrtaks skal finna meðalþyngd hverrar einingar í viðkomandi afurð. □ 2 Við útreikning á afla skal leggja til grundvallar meðalþunga eininga sem teknar voru í úrtak af hverri afurð, þunga umbúða, reglur um ís í umbúðum, sbr. 3. mgr., og nýtingarstuðla. □ 3 Þegar tekið er tillit til íss í afurðum skal margfalda nettóþunga flaka með 0,98. Heilfrysta grálúðu skal margfalda með 0,97, heilfrystan karfa með 0,96 og lausfryst íshúðuð flök skal margfalda með 0,95. Um frádrátt vegna íss í öðrum afurðum sem sérstaklega eru íshúðaðar fer samkvæmt ákvörðun ráðuneytisins.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==