Stjórn fiskveiða 2020-2021

Reglugerð nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla 77 49. gr. □ 1 Hafnaryfirvöld skulu meta hvort upplýsingar sem fram koma á vigtarnótum séu trúverðugar. Telji hafnaryfirvöld upplýsingar sem koma fram á vigtarnótu ótrúverðugar skulu þau tilkynna það Fiskistofu. XII. KAFLI Ýmis ákvæði. 50. gr. □ 1 Sé fyrirhugað að flytja út óunninn afla til sölu erlendis sem þegar hefur verið endanlega vigtaður og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu, skal útflytjandi (umráðamaður viðkomandi afla) tryggja að áður en afli er settur um borð í flutningsfarið sé tilkynnt til Fiskistofu um þau veiðiskip sem veitt hafa umræddan afla og um útflutt aflamagn sundurliðað eftir tegundum eins nákvæmlega og unnt er. Við útflutning afla er heimilt að fylla ílát með öðrum tegundum sé magn einstakra tegunda það lítið að ekki fylli ílát. Í slíkum tilfellum skal hver tegund vera aðskilin og ílátið merkt sérstaklega með upplýsingum um þær tegundir sem í því eru. Aldrei er þó heimilt að flytja út þorsk með öðrum tegundum í sama íláti. 51. gr. □ 1 Teljist undirmálsafli að hluta utan aflamarks skal honum haldið aðgreindum frá öðrum afla og hann veginn sérstaklega. Löggiltur vigtarmaður skal staðfesta á vigtarnótu hversu mikill undirmálsafli er í hverri veiðiferð. □ 2 Allur undirmálsafli seldur óunninn erlendis reiknast að fullu til aflamarks. 52. gr. □ 1 Teljist afli utan aflamarks samkvæmt 8. og 9. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk- veiða, skal honum haldið aðgreindum frá öðrum afla og hann veginn sérstaklega. Löggiltur vigtar- maður skal staðfesta á vigtarnótu hversu mikill afli þessi er í hverri veiðiferð. Skylt er að landa slíkum afla innanlands á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og skal hann boðinn þar upp. Löggiltur vigtarmaður á uppboðsmarkaði skal fylla út og undirrita vigtarnótu þar sem fram koma upplýsingar sem við eiga og tilgreindar eru í 10. gr. reglugerðar þessarar. Að sölu lokinni skulu forráðamenn uppboðsmarkaðar standa skil á þeim hluta andvirðis, sem rennur til sjóðs, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, í samræmi við ákvæði laga um stjórn fiskveiða þar um. □ 2 Fari sá hluti afla sem reiknast ekki til aflamarks skips samkvæmt ákvæðum 9. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, yfir 0,5% af uppsjávarafla, eða 5% af öðrum sjávarafla eða ef ekki hefur verið farið að ákvæðum 10. gr. greinar við sölu aflans, skal Fiskistofa endurreikna aflamarksstöðu skipsins þannig að sá hluti aflans skráist til aflamarks við- komandi skips að fullu. 53. gr. □ 1 Fiskistofa getur ákveðið í hvaða formi vigtarnótur skuli vera. Óheimilt er að nota vigtarnótur sem eru í öðru formi en Fiskistofa ákveður. Þá getur Fiskistofa gert kröfu um að allar vigtanir í vigtunarbúnaði endurvigtunarleyfishafa sem vigtar í sífellu, séu skráðar og aðgengilegar eftirlits- mönnum. □ 2 Reglur um meðferð og varðveislu bókhaldsgagna gilda um vigtarnótur. 54. gr. □ 1 Eftirlitsmönnum Fiskistofu og starfsmönnum hafnaryfirvalda er heimill aðgangur að fiski- skipum, flutningsförum, fiskverkunum, fiskmörkuðum og birgðageymslum sem nauðsynlegur er til að vigta afla eða hafa eftirlit með vigtun hans.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==