Stjórn fiskveiða 2020-2021

Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 78 XIII. KAFLI Viðurlög. 55. gr. □ 1 Sigli fiskiskip með afla af miðum til sölu á markaði erlendis, skal útgerð og skipstjóri fiski- skipsins tryggja að Fiskistofu séu sendar upplýsingar um aflann eigi síðar en 24 klst. áður en lagt er af stað. □ 2 Fiskistofu er heimilt að veita fiskiskipum leyfi til að afla sem veiddur er úr íslenskum deili- stofnum sé landað erlendis, sama gildir ef sérstaklega stendur á, t.d. vegna alvarlegrar vélarbilunar hjá skipi sem vinnur afla um borð. Innheimta skal kostnað vegna ferðar eftirlitsmanns til að fylgjast með löndun úr skipinu erlendis, samkvæmt framlögðum reikningum, auk daggjalds vegna veru eftirlitsmanns um borð í skipi fyrir hvern starfsdags eftirlitsmanns samkvæmt auglýsingu nr. 1177/2015, um gjaldskrá Fiskistofu. 1) 1) Núgildandi gjaldskrá Fiskistofu nr. 5/2020. 56. gr. □ 1 Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum, samkvæmt VI. kafla laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og IV. kafla laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála. □ 2 Þá er Fiskistofu heimilt að afturkalla vigtunarleyfi vinnslustöðva, fiskmarkaða eða annarra aðila sem fengið hafa vigtunarleyfi, sé ekki af þeirra hálfu farið að ákvæðum reglugerðar þessarar. Einnig getur Fiskistofa afturkallað viðurkenningu sína á erlendum uppboðsmarkaði, eða svipt aðila leyfi til að annast vigtun afla og skýrslugjöf vegna afla sem fluttur er á markað erlendis brjóti hann gegn ákvæðum leyfisbréfs eða reglugerðar þessarar. □ 3 Ráðuneytinu er heimilt, að fengnum tillögum Fiskistofu, að svipta uppboðsmarkað fyrir sjávarafla rekstrarleyfi samkvæmt lögum um það efni ef markaður eða þeir sem í þágu hans starfa hafa brotið gegn ákvæðum III. kafla laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar eða reglugerð þessari. 57. gr. □ 1 Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 116/2006, um stjórn fisk- veiða og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 224/2006, um vigtun og skráningu sjávarafla með síðari breytingum. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. ágúst 2016.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==