Stjórn fiskveiða 2020-2021
Reglugerð nr. 659/2014, um vigtun og skráningu meðafla við veiðar á uppsjávarfiski 79 Reg lugerð um vigtun og skráningu meðafla við veiðar á uppsjávarfiski. 1. gr. □ 1 Reglugerð þessi tekur til íslenskra skipa sem stunda veiðar á kolmunna, loðnu, makríl, norsk- íslenskri síld og íslenskri sumargotssíld og landa afla sínum á Íslandi. Jafnframt tekur reglugerð þessi til erlendra skipa sem stunda veiðar innan íslenskrar lögsögu og landa afla sínum á Íslandi. 2. gr. □ 1 Vigtunarleyfishafi sem tekur á móti uppsjávarfiski sbr. 1. gr. til bræðslu, skal taka sýni úr afla svo sem mælt er fyrir um í þessari grein. Niðurstaða sýnatöku skal lögð til grundvallar við ákvörðun magns og skráningu einstakra tegunda meðafla. □ 2 Fyrir löndun skal skipstjóri tilkynna til vigtunarleyfishafa um áætlað aflamagn. □ 3 Úr hverjum farmi sem er meira en 100 lestir skulu tekin 5 sýni. Hvert sýni skal vega um það bil 100 kg. Skulu sýni valin þannig að dregnar skulu út slembitölur fyrir hverja heila lest á talnabilinu frá einum til áætlaðs heildarafla. Þegar löndunarvog sýnir útdregna slembitölu skulu sýni tekin. □ 4 Sýnin skulu sett í kar og merkt með númeri og þau vegin til að ákvarða heildarþunga hvers sýnis. Starfsmenn vigtunarleyfishafa skulu tegundaflokka meðafla, telja fiska af kvótabundnum meðafla tegundum og vigta magn hverrar tegundar í hverju sýni (kari). Magn meðafla í hverri tegund skal síðan uppreiknað með tilliti til heildarafla hverrar löndunar og skal sá meðafli skráður til afla viðkomandi fiskiskips í aflaskráningarkerfi Fiskistofu. □ 5 Við framkvæmd sýnatöku skulu aðferðir og búnaður samræmd milli vinnslustöðva í samráði við Fiskistofu. □ 6 Allar niðurstöður mælinga skulu skráðar á sérstök eyðublöð sem skulu varðveitt í a.m.k. tvö ár. 3. gr. □ 1 Uppsjávarafla sem landað er til vinnslu skal vigta samkvæmt ákvæðum reglugerðar um vigtun sjávarafla og skal hver tegund vegin sérstaklega. Fari afli til bræðslu, þrátt fyrir að honum hafi verið landað til vinnslu, skal með hann fara samkvæmt ákvæðum 2. gr. □ 2 Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er vigtunarleyfishafa sem tekur á móti uppsjávarfiski til vinnslu heimilt að taka sýni úr afla. Sýni skal tekið úr fyrstu 10 tonnum farms sem landað er, þá skal sýni tekið úr hverjum 30 tonnum sem landað er í kjölfarið. Hvert sýni skal vega um það bil 30 kg og skal það valið af handahófi áður en afli er stærðarflokkaður. Hvert sýni skal vegið til að ákvarða heildarþunga hvers sýnis. Starfsmenn vigtunarleyfishafa skulu tegundaflokka meðafla, telja fiska af kvótabundnum meðaflategundum og vigta magn hverrar tegundar í hverju sýni. Magn meðafla í hverri tegund uppsjávarfisks skal síðan uppreiknað með tilliti til heildarafla hverrar löndunar og skal sá meðafli skráður til afla viðkomandi fiskiskips í aflaskráningarkerfi Fiskistofu. Á vigtarnótu skulu ennfremur koma fram upplýsingar um afdrif hverrar tegundar til vinnslu eða bræðslu. Aðrar tegundir sem flokkast frá við stærðarflokkun afla skulu teknar frá og flokkaðar og vigtaðar sérstaklega. 4. gr. □ 1 Skipstjóri skal taka sýni úr síldarafla sem veiddur er austan 17°00´ V. Sýni skulu tekin úr hverju kasti eða togi og skal sýnatakan fara fram fyrir stærðarflokkun afla og framkvæmd þannig
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==