Stjórn fiskveiða 2020-2021
Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 80 að tekið skal eitt 50 sílda sýni úr hverju kasti eða togi. Hvert sýni skal aðgreint til tegunda í samræmi við kynþroskastig. Skipstjóri skal ávallt tilkynna hlutfall síldartegunda ásamt áætluðu aflamagni til vigtunarleyfishafa, Fiskistofu 1) og viðkomandi löndunarhafnar, fyrir löndun. □ 2 Magn hverrar síldartegundar skal síðan uppreiknað með tilliti til heildarafla hverrar löndunar og skal hver síldartegund skráð til afla viðkomandi fiskiskips í aflaskráningarkerfi Fiskistofu. Allar niðurstöður mælinga skulu skráðar á sérstök eyðublöð sem skulu varðveitt í a.m.k. tvö ár. 1) Tilkynning sendist ti l uthafsv@fiskistofa.is 5. gr. □ 1 Vinnsluskipum sem frysta loðnu, síld, makríl og kolmunna um borð er heimilt að blanda saman í lestum fráflokkaðri tegund sem ekki er hæf til vinnslu og afskurði sem fellur til við vinnsluna. Sé það gert skal skipstjóri, áður en löndun hefst, tilkynna vigtunarleyfishafa um í hvaða lestum fráflokkuð tegund og afskurður er. Öllum afskurði og fráflokkaðri tegund skal landað og sýni tekin til að sannreyna magn heillar tegundar í samræmi við ákvæði 2. gr. Ef magn afskurðar og hausa í afla vinnsluskips uppsjávarafla er ekki í samræmi við uppgefna vinnslunýtingu í viðkomandi veiðiferð, er Fiskistofu heimilt að skrá það sem umfram er sem heilan fisk. Slík skráning skal, hvað magn og tegundir varðar, vera í samræmi við hlutfall tegunda í uppsjávarafla í viðkomandi veiðiferð. 6. gr. □ 1 Um vigtun uppsjávarafla og meðafla og skráningu hans gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 224/2006, um vigtun og skráningu sjávarafla, 1) með síðari breytingum. 1) Gildandi rg. 745/2016, sbr. 1011/2017, 91/2018, 617/2018, 436/2019, felldi eldri reglugerð úr gildi og 325/2020. 7. gr. □ 1 Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum. Þá er Fiskistofu heimilt að áminna vigtunarleyfishafa eða afturkalla leyfi hans til vigtunar ef vigtunarleyfishafi eða starfsmenn hans brjóta gegn ákvæðum þessarar reglugerðar í samræmi við ákvæði laga nr. 57/1996, með síðari breytingum. 8. gr. □ 1 Reglugerð þessi er gefin út samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi 14. júlí 2014. Frá sama tíma eru felld úr gildi reglugerð nr. 246/2008, um vigtun og skráningu meðafla við veiðar á uppsjávarfiski, með síðari breytingum. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. júlí 2014.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==