Stjórn fiskveiða 2020-2021
Reglugerð nr. 468/2013, um nýtingu afla og aukaafurða 81 Reg lugerð um nýtingu afla og aukaafurða. 1. gr. □ 1 Skylt er að hirða og landa öllum afla sem í veiðarfæri kemur í íslenskri lögsögu, með þeim undantekningum sem í reglugerð þessari greinir. 2. gr. □ 1 Heimilt er að varpa fyrir borð þeim fisktegundum sem ekki eru háðar takmörkun á leyfilegum heildarafla, enda verði þær ekki taldar hafa verðgildi. □ 2 Heimilt að varpa fyrir borð innyflum, hausum og öðru slíku sem fellur til við verkun og vinnslu afla um borð í veiðiskipum, en ávallt skal nýta þetta hráefni eftir því sem kostur er. Að auki gilda eftirtalin skilyrði: A. Fyrir öll skip gildir: Skylt er að hirða og koma með að landi öll þorsk- og ufsahrogn. Skylt er einnig að hirða og koma með að landi hausa og allan afskurð sem fellur til við vinnslu á makríl og íslenskri sumargotssíld. B. Fyrir önnur skip en þau er vinna afla um borð gildir: Skylt er að koma með að landi alla þorsklifur auk ufsa-, löngu-, keilu- og skötuselslifur. C. Fyrir skip sem vinna afla um borð gildir: Skylt er að hirða og koma með að landi alla grálúðuhausa. Skipum sem vinna afla um borð og eru með nýtanlegt lestarrúmmál (effective space) 600-800 m 3 er skylt að hirða og koma með að landi að lágmarki 30% af þorskhausum sem til falla við veiðar á hverju fiskveiðiári. Skipum sem eru með nýtanlegt lestarrúmmál meira en 800 m 3 er skylt að hirða og koma með að landi að lágmarki 40% af þorskhausum sem til falla við veiðar á hverju fiskveiðiári. Heimilt er þessum skipum í stað hausa, að koma með samsvarandi magn af gellum, kinnum og/eða fésum að landi eða af öðrum afurðum sem unnar eru úr hausum um borð. Jafnframt er svo skylt að hirða og koma með að landi allan afskurð sem fellur til við snyrtingu á þorsk-, ýsu-, karfa- og ufsaflökum um borð í skipum sem vinna afla um borð. Lestarrúmmál skipa samkvæmt þessum lið skal staðfest af Siglingastofnun Íslands. 3. gr. □ 1 [Við hrognkelsaveiðar er skylt að koma með öll hrognkelsi að landi, þó er heimilt að sleppa lífvænlegum rauðmaga.] 1) Skipum sem stunda netaveiðar, aðrar en grásleppuveiðar samkvæmt sérstöku leyfi Fiskistofu, er skylt að sleppa allri grásleppu sem er lifandi í netum þegar þau eru dregin. □ 2 Um skyldu til að sleppa lúðu fer samkvæmt reglugerð 2) um veiðar á lúðu. 1) Rg. 237/2019. 2) Rg. 470/2012, sbr. 522/2013, 1028/2013. 4. gr. □ 1 Komi afli í veiðarfæri fiskiskips sem er selbitinn eða skemmdur á annan hátt og sem ekki er unnt að komast hjá við tilteknar veiðar, skal ekki reikna þann afla til aflamarks skipsins. Þessum afla skal haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins, hann veginn og skráður sérstaklega. Afla þennan er eingöngu heimilt að nýta til bræðslu.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==